Fimmtíu manns leituðu að konunni sem aldrei týndist Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 26. ágúst 2012 12:36 Mynd/Baldur
Mannleg mistök urðu til þess að umfangsmikil leit að erlendri konu stóð yfir í meira en hálfan sólarhring í gær. Leitinni var hætt þegar í ljós kom að konan var ekki týnd heldur hafði verið oftalið rútuna sem hún hafði ferðast með. Það var skömmu eftir hádegi í gær sem að bílstjóri áætlunarbifreiðar tilkynnti lögreglu að erlend kona sem verið hafði á ferð með honum væri saknað. Konan hafði ekki skilað sér aftur í rútuna eftir að hafa farið úr henni við Eldgjá sem er skammt frá Skaftafelli. Leit var strax hafinn að konunni og björgunarsveitir kallaðar til. „Það er leitað í allan gærdag og fram á kvöld og við bætum svo við fleiri sveitum þegar líða fer á kvöldið. Því að það náttúrulega fer að skyggja," segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli. Alls tóku um fimmtíu manns þátt í leitinni. Óskað var eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar en vegna veðurs var ekki hægt að senda þyrlu hennar á svæðið. Þegar ekkert hafði enn sést til konunnar um klukkan þrjú í nótt var farið að skoða málið betur. „Þegar er búið að fara vel yfir svæðið þá förum við að fá svona ákveðna bakþanka með leitina og leggjumst betur ofan í fjöldatölur og talningar úr bílnum og í og úr bílnum. Þá sjáum við það í rauninni að það hefur verið oftalið í bílinn. Þannig að hún hefur í rauninni ekki verið týnd þessi kona," segir Sveinn. „Þetta eru í rauninni bara mannleg mistök í sjálfu sér. Það er svo sem ekki hægt að hengja það á neitt annað." Í ljós kom að konan hafði farið úr jakka og tekið af sér sjal á meðan hún brá sér úr rútunni við Eldgjá. Bílstjórinn þekkti hana ekki þegar hún kom til baka og taldi því að hún hefði ekki skilað sér aftur í rútuna og væri týnd. Konan var hins vegar allan tímann í hópi ferðamannanna sem ýmist hófst við í rútunni á meðan á leitinni stóð eða aðstoðuðu við hana. Hún áttaði sig ekki á því að hún væri sú sem verið væri að leita að. „Menn voru náttúrulega fegnastir því að það væri skyldi enginn vera týndur úti í myrkrinu það var nú eiginlega það sem menn voru ánægaðstir með að það skyldi ekki vera. Svo reynum við nú bara að sjá ljósu punktana í þessu. Þetta er líka góð æfing fyrir kerfið. Við erum með öflugt og gott björgunarsveitakerfi hérna og við sjáum það vel í svona að það virkar vel og allir reiðubúnir að leggja á sig það sem til þarf," sagði Sveinn Kristján Rúnarsson yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli.
Tengdar fréttir Týnda konan leitaði að sjálfri sér Leit að erlendri konu sem hafði verið saknað síðan um hádegi í gær var hætt um klukkan þrjú í nótt þegar í ljós kom að hún var alls ekki týnd. Hún hafði þvert á móti hjálpað samviskusamlega til við að leita að sjálfri sér. 26. ágúst 2012 10:07 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira
Týnda konan leitaði að sjálfri sér Leit að erlendri konu sem hafði verið saknað síðan um hádegi í gær var hætt um klukkan þrjú í nótt þegar í ljós kom að hún var alls ekki týnd. Hún hafði þvert á móti hjálpað samviskusamlega til við að leita að sjálfri sér. 26. ágúst 2012 10:07