Sport

Dibaba tókst ekki að ná sögulegri tvennu - Defar vann gullið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Meseret Defar kemur hér í mark í hlaupinu.
Meseret Defar kemur hér í mark í hlaupinu. Mynd/AFP
Meseret Defar frá Eþíópíu varð í kvöld Ólympíumeistari í 5000 metra hlaupi á Ólympíuleikvanginum í London en hún hafði betur á móti löndu sinni Tirunesh Dibaba sem gat endurskrifað Ólympíusöguna með sigri.

Dibaba var búin að verja Ólympíutitil sinn í 10 þúsund metra hlaupi á leikunum í London og gat í kvöld orðið fyrsta konan til þess að verja Ólympíugull sín í tveimur lengstu millivegahlaupunum. Það tókst hinsvegar ekki.

Meseret Defar átti besta endasprettinn í hlaupinu og kom í mark á 15:04.25 mínútum. Hún tók fram úr Tirunesh Dibaba í lokin og Vivian Cheruiyot frá Kenía gerði það líka og tryggði sér silfurverðlaunin. Tirunesh Dibaba fékk því brons alveg eins og á leikunum í Aþenu 2004.

Meseret Defar var að vinna 5000 metrana í annað skiptið á ferlinum því hún fékk einnig gull á leikunum í Aþenu. Þær stöllur höfðu sætaskipti frá því í Peking fyrir fjórum árum þegar Dibaba vann gullið en Defar tók bronsið.

Þær Tirunesh Dibaba og Meseret Defar hafa aftur á móti séð til þess að Eþíópa hefur átt Ólympíumeistarann í 5000 metra hlaupi á undanförnum þremur Ólympíuleikum. Ólympíugullið í þessari grein fór síðast út fyrir Eþíópíu þegar Rúmeninn Gabriela Szabo vann í Sydney árið 2000.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×