Vélin lent án vandkvæða eftir að hafa fengið sprengjuhótun 16. ágúst 2012 07:08
Airbus farþegaþota frá rússneska flugfélaginu Aeroflot með 253 um borð, lenti heilu og höldnu á Keflavíkurflugvelli um klukkan hálf sjö í morgun, eftir að tilkynnt var um sprengju í vélinni og flugstjórinn óskaði eftir tafarlausu lendingarleyfi á Keflavíkurflugvelli. Það var klukkan hálf sex sem flugstjórinn tilkynnti um málið, en þá var vélin skammt suðvestur af landinu á leið til Moskvu frá New York. Að sögn fréttastofu BBC barst flugstjóranum tilkynning frá Bandarískum yfirvöldum um að fimm töskur með ýmiskonar sprengiefni væru um borð og ættu þær allar að springa um leið og vélin lenti í Moskvu. Allar viðbragðsáætlanir voru virkjaðar á Keflavikurflugvelli og stjórnstöð Almannavarna í Skógarhlíð var mönnuð, og var flugslysaáætlun fyrir Keflavíkurflugvöll þegar virkjuð. Lögregla virkjaði einnig viðbragðsáætlun gegn ólöglegu athæfi í loftförum. Sjúkrabílar á höfuðborgarsvæðinu voru settir í viðbragðsstöðu og sömuleiðis brunavarnir Suðurnesja, auk þess sem allt slökkvilið á vellinum var virkjað til að taka á móti vélinni í lendingu. Upphaflega átti hún að lenda korter yfir sex, en vegna mikillar þoku á Keflavíkurflugvelli, tafðist lendingin um 15 mínútur. Vélin var strax flutt á afvikinn stað þar sem farþegar voru fluttir frá borði og síðan hefst sprengjuleit í vélinni og er málið nú á forræði lögreglustjórans á Suðurnesjum. Einhver röskun varð á almennu farþegarflugi um völlinn vegna þessa, þar sem að vélar að vestan voru settar í bið í lofti, og Evrópuvélarnar biðu á vellinum eftir farþegum úr þeim.
Mest lesið Segir vonbrigðin með prinsessuna rista djúpt Erlent Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Innlent Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Innlent „Þá kemur bara allt í einu högg“ Innlent Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Veður Óvæntur stórsigur í Texas hringir bjöllum hjá Repúblikönum Erlent Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Innlent Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Innlent Varpa loksins ljósi á umdeilt samkomulag Epsteins frá 2008 Erlent Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Innlent Fleiri fréttir Þriðjungi finnst erfitt að fylgjast með fréttum Segir loðnuna allsstaðar kveikja vertíðarstemningu „Þá kemur bara allt í einu högg“ Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Gagnrýnir stjórnvöld um sinnuleysi vegna fæðuöryggis þjóðarinnar Brottvísanir verði beittasta vopnið Fjölskyldunni vísað til Rússlands en örlög föðurins óljós Fækka sýslumönnum í einn Óttaðist um líf sitt þegar árásin stóð sem hæst Loka framleiðslueldhúsi vegna listeríu Eygló landpóstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venjulegt fólk á landsbyggðinni?“ Einum Bifrastarkennaranna sagt upp fyrir ótengdar sakir Vilja ekki óundirbúnar fyrirspurnir í borgarstjórn Kári Stefánsson fordæmir vinnubrögð Moggans Vilja kengbeygja kvenfélagið og krefjast Ketiláss alls Skýr skilaboð um að það borgi sig ekki að leita til Íslands Lögregla fékk send myndbönd af árásinni frá vegfarendum Boðar aðgerðir gegn brotastarfsemi Samstillt þingnefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Sjá meira