Innlent

Þeir sem laumuðust í flugvélina verða ákærðir

BBI skrifar
Hælisleitendurnir tveir komu í viðtal á Stöð 2 í síðasta mánuði.
Hælisleitendurnir tveir komu í viðtal á Stöð 2 í síðasta mánuði.
Ákæra verður gefin út á hendur hælisleitendunum tveimur sem laumuðust upp í flugvél Icelandair í júlí síðastliðnum. Þetta staðfestir Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri Suðurnesja í samtali við fréttastofu.

„Við erum að vinna að ákærunni og erum á allra síðustu metrunum," segir Sigríður og býst við að ákæran skil sér í byrjun næstu viku.

Auk þess að lauma sér upp í flugvél Icelandair sem var á leið til Danmerkur hafa strákarnir ítrekað reynt að komast um borð í millilandaskip í Reykjavíkurhöfn. Þeim hefur hingað til ekki tekist það.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×