Borgartréð 112 ára gamall Gljávíðir 18. ágúst 2012 17:50 Jón Gnarr fyrir framan tréð.
Jón Gnarr, borgarstjóri, útnefndi 112 ára gamlan Gljávíði sem borgartré við athöfn í garði Hressingarskálans við Austurstræti í dag. Garðurinn við Hressingarskálann er einn þekktasti einkagarður frá lokum nítjándu aldar og stóð við hús Árna Thorsteinssonar landfógeta í Reykjavík frá 1862. Garðurinn var nýttur til skrauts og nokkurra nytja og var jafnan kallaður Landfógetagarðurinn. Gljávíðirinn sem nú er valinn borgartré 2012 í þessum fornfræga garði fékk Árni að gjöf frá Schierbeck landlækni og var gróðursettur um 1900. Þegar Árni flutti inn í húsið var fyrir kartöflugarður og lítil skilyrði til garðræktunar. Lét hann smám saman grafa gryfjur í garðinn og fyllti þær með mold og áburði og tók verkið allmörg ár. Garðurinn var stór og í honum ræktaði Árni fjölda plantna, sem aldrei fyrr höfðu verið ræktaðar hér á landi. Hinum algengustu garðjurtum og innlendum skrúðplöntum var heldur ekki gleymt. Garðurinn stóð óbreyttur fram á sjötta áratug síðustu aldar en þá var honum breytt með tilkomu Hressingarskálans. En segja mætti að Reykvíkingar hafi fengið að njóta þessa frumkvöðlastarfs í garðrækt í 150 ár. Glávíðirinn hefur á þeim 112 árum sem liðin eru séð tímana tvenna og lifað af breytingar á öllu umhverfi sínu. Fyrir nokkrum árum hallaði hann sér út af í miklum stormi og hvílir á styrkum stoðum og hefur náð að skjóta rótum að nýju. Hinir þykku armar jötunsins gamla eru börnum einstakt ánægjuefni við klifurleiki í garðinum. Hann hefur fjóra 30 cm þykka boli og er um 6-7 metra hár en um 8-9 metra langur. Tréð var valið af Skógræktarfélagi Reykjavíkur í samstarfi við Reykjavíkurborg
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira