Innlent

Fólk mætti með blóm fyrir Jóhannes

BBI skrifar
Íslendingar voru samir við sig og biðu í röð þegar nýja verslunin opnaði.
Íslendingar voru samir við sig og biðu í röð þegar nýja verslunin opnaði.
Fólk mætti með blómvendi og rósir fyrir Jóhannes Jónsson þegar hann opnaði nýju matvöruverslunina Iceland í morgun. Fjölmenni var komið saman og beið fyrir utan þegar verslunin opnaði.

Jóhannes kom út í eigin persónu klukkan 11, steig upp á stól og hélt litla tölu. Hann lofaði að nýta reynslu sína til að skila góðu starfi með versluninni. Þá veitti hann FAAS, Félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma, styrk upp á milljón króna og Bandalagi íslenskra skáta styrk upp á aðra milljón.

Að ræðunni afstaðinni opnaði búðin og Jóhannes tók hjartanlega í höndina á hverjum viðskiptavini sem leit inn. Fólk var að sögn létt í lund, þakkaði Jóhannesi framtakið og heiðraði hann með blómvöndum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×