Sjálfboðaliðar reisa íþróttahöll í Hveragerði BBI skrifar 5. júlí 2012 11:27 Mynd/Valdimar Thorlacius
Fjöldi sjálfboðaliða kom saman í Hveragerði í gær og hjálpaði til við að reisa nýja íþróttahöll fyrir bæinn. Mæting sjálfboðaliða var framar vonum og telur Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri, að rúmlega 50 manns hafi lagt hönd á plóg. Að sögn ríkti gleði og fjör í hópnum. Í gær var annar dagurinn af þremur sem sjálfboðaliðar mæta til að vinna að Hamarshöllinni í Hveragerði. Verkefnið í gær fólst í því að draga út hallardúkinn og koma honum á rétta staði, en hann er níðþungur og því þarf fjölmenni til færa hann úr stað. Síðasti dagur sjálfboðavinnunnar verður í dag. Að sögn Aldísar var einstök sjón að verða vitni að því þegar tugir einstaklinga röðuðu sér á kantinn og hlupu með dúkinn yfir völlinn. Þeir erlendu aðilar sem hafa umsjón með verkinu hafa sjaldan ef nokkurn tíma orðið vitni að viðlíka viðbrögðum hjá bæjarbúum þar sem svona hús hafa verið sett upp. Aldís segir að Hvergerðingar geti verið stoltir af hópnum sínum. Stefnan er sú að vinna við húsið klárist um helgina þegar höllin verður blásin upp. Um er að ræða loftborið íþróttahús og segir á vefsvæði Hveragerðis að það verði eitt glæsilegasta íþróttasvæði landsins. Aldís telur að það verði mikið sjónarspil þegar húsið verður blásið upp. Aðspurð um hvers vegna sjálfboðaliðar eru fengnir til að vinna við húsið segir Aldís ekkert launungarmál að fjármunir sparist með þessum hætti. Það sé hins vegar ekki eina ástæðan „Í svona litlum plássum myndast ákveðin samstaða meðal íbúanna. Þessi íþróttahöll er flottari en við eigum að venjast hér. Fólk hlakkar mikið til að sjá þetta verða að veruleika. Fólk langar að taka þátt í þessu, eiga einhvern smáhluta af byggingunni. Svo er bara gaman þegar fólk í dag getur sameinast um eitthvað." Höllin verður 5140 fermetrar með 15 metra lofthæð. Þar inni verður hálfur fótboltavöllur og löggildur handboltavöllur. Því er hér ekki um neina smásmíð að ræða.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Sjá meira