Meiri líkur á að vinna í lottói en að finna ísbjörninn Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. júlí 2012 14:19 Þyrla Landhelgisgæslunnar sveimar yfir svæðinu.
Kjartan Sveinsson, sem gerir út selskoðunarbátinn Brimil á Hvammstanga, segir að hverfandi líkur séu á því að ísbjörninn sem menn urðu varir við fyrir norðan í gær sé hér ennþá. Kjartan var á leið í selskoðun með sextán ferðamenn þegar Vísir sló á þráðinn til hans í dag. „Ég held að það séu meiri líkur á því að við vinnum í lottóinu heldur en að við sjáum ísbjörn í dag," segir Kjartan. Hann telur að langmestar líkur séu á því að ísbjörninn hafi haldið aftur heim á leið. „Hann syndir um sex mílur á klukkutíma þannig að ég hef nú trú á því að hann hafi nú bara vippað sér þarna upp og sé nú farinn aftur út á sjó," segir Kjartan, sem telur að eðlilegast væri að leita að birninum við vestanvert landið. „Þetta er ísbjörn sem kemur frá Grænlandi og ég held að hann sé bara á leið aftur," segir hann. Kjartan telur að það sé vel gerlegt fyrir björninn að synda til baka, því hann hafi sennilegast getað nært sig við Ísland. „Það er mjög létt fyrir hann að fá sér í gogginn núna því að urtan er búin að venja kópana undan sér og það er örugglega ekkert mál fyrir hann að ná sér í einn kóp eða jafnvel tvo," segir hann. Kópur sé fimmtán kíló og það sé ágætis magafylli fyrir björninn. „Fyrst að þeir fundu hann ekki í gær þá held ég að hann sé bara farinn aftur," segir Kjartan að lokum.
Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn fer ekki saman hljóð og mynd Erlent Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð Innlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Innlent „Leynileg áróðursherferð“ fyrir opnum tjöldum Erlent Lögregla leitar manns Innlent Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Innlent „Hvað er að lögreglunni?“ Innlent Fleiri fréttir Hundruðum þúsunda bóka fargað á ári hverju Jakob hættir sem aðstoðarmaður og snýr sér að gríninu Vilja lækka álögur tímabundið vegna hækkandi olíuverðs Leita að fjölskyldu til að vista allt að fjögur börn í neyð „Hvað er að lögreglunni?“ Lögregla leitar manns Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Neitar að hafa myrt mann á Kársnesi Lenging skólaársins ekki ávísun á betri námsárangur Neitaði að segja til nafns og hafði í hótunum við lögreglu Slökkvilið bjargaði ketti í vanda Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Verðbólga, biskupsmálið og utanríkismál Sjá meira