Innlent

Hundrað mál á borði lögreglu í nótt

Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglu í nótt. Í öðru tilfellinu var maður skorinn með brotinni flösku utan við skemmtistað í miðborginni og hlaust af þó nokkur blæðing. Talið er að upphaf megi rekja til ágreinings inni á staðnum milli aðila sem endaði með fyrrgreindum afleiðingum. Þá var maður slegin í höfuð með glasi á dansgólfi á skemmtistað í Reykjavík og hlaut hann við það skurði í andlit og á hendi. Í báðum tilfellum voru aðilar fluttir með sjúkrabifreiðum á slysadeild Landspítalans en ekki er um alvarlega áverka að ræða. Málin eru til rannsóknar hjá lögreglu.

Tilkynnt var um vopnaða konu fyrir utan skemmtistað í miðborginni. Hún var sögð vera með hótanir í garð dyravarða. Fram kom að hún væri með piparúða, hníf og kylfu. Konan fannst skömmu síðar en þá fannst stálkylfa í handtösku hennar. Í viðræðum við varðstjóra viðurkenndi konan að hafa verið með hníf skömmu áður en lögreglu bar að garði. Hún sagðist hafa tapað honum á hlaupum en kutanum hafði hún fundið geymslustað milli brjósta sinna. Hún tók fram að hann hefði tollað illa þar og ítrekað sigið niður á maga og því fór sem fór. Það kom konunni, sem var nokkuð ölvuð, á óvart að slíkur vopnaburður væri óheimill og að hún yrði kærð fyrir að hafa umrædda kylfu í fórum sínum.

Þá voru þrír teknir fyrir ölvun við akstur í nótt á höfuðborgarsvæðinu. Nítján ára gömul stúlka var svipt ökuréttindum á fimmta tímanum í nótt. Hún mældist á 107 kílómetra hraða á Reykjavíkurvegi í Hafnarfirðir. Hámarkshraði á veginum er 50 kílómetrar á klukkustund. Maður á þrítugsaldri var tekinn fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna. Þá var 18 ára gömul stúlka einnig tekin fyrir að aka yfir leyfilegum hámarkshraða. Öll munu þau eiga von á háum sektum og ökuleyfisviptingu.

Nærri 100 mál voru skráð og afgreidd hjá lögreglunni á Höfuðborgarsvæðinu í nótt. Telst það í meðallagi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×