Innlent

Umsóknarferli Íslands gengur óvenju hratt

Þrír kaflar til viðbótar voru í morgun opnaðir í viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Stefan Fulhe stækkunarstjóri segir að gangurinn í viðræðunum sé betri en hjá nokkru öðru landi frá árinu 2006.

Kaflarnir sem opnaður voru í morgun á sérstakri ríkjaráðstefnu í Brussel fjalla um flutningastarfsemi, félags- og vinnumál og fjárhagslegt eftirlit. Nú hafa átján kaflar af þrjátíu og þremur verið opnaðir og er samningum um tíu þeirra þegar lokið. Stefan Fuhle stækkunarstjóri Evrópusambandsins segist afar ánægður með gang viðræðnanna.

„Þetta er hraðasta ferli allra umsóknarlanda frá árinu 2006 síðan við samþykktum endurnýjað samkomulag um stækkun ESB," sagði Fuhle.

Hann bætti því við að nú færi að koma að þeim köflum sem yrði erfiðara að semja um en sagðist bjartsýnn á að viðræðurnar muni áfram ganga jafn vel og hingað til.

„Við höldum ótrauð áfram að sameiginlegu markmiði okkar."

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra sat ráðstefnuna fyrir hönd Íslands og hann tók í svipaðan streng og Fuhle.

„Á Íslandi snýst allt um fisk þannig að það er afar mikilvægt," sagði Össur.

Össur kom einnig inn á erfiðleikana sem nú hrjá sum lönd Evrópusambandsins og sagði að Ísland gæti orðið þeim löndum ákveðin fyrirmynd.

„Rennið upp, reimið að ykkur og standið af ykkur storminn. Við vitum að það lægir um síðir og að lokum mun sólin skína á ný," sagði hann.

Össur segir stefnt að því að allir kaflarnir 33 verði opnaðir fyrir árslok.

„Eins og stækkunarstjórinn sagði er þetta hraður gangur. En ég get ekkert spáð fyrir um hvenær þessu lýkur fyrr en við sjáum hvernig gengur með sjávarútvegsmálin. Og ef einhvers staðar skrensar þá er það þar," sagði hann í samtali við fréttastofu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×