Þrjúhundruð unglingar í Háskólann JHH skrifar 11. júní 2012 14:09 Þessir nemendur voru að kynna sér blaða- og fréttamennsku í Háskóla Íslands í dag.
Ríflega þrjú hundruð krakkar á aldrinum 12-16 ára settust í morgun á skólabekk í Háskóla unga fólksins sem starfræktur verður í Háskóla Íslands í þessari viku. Þar munu nemendur sækja fjölbreytt námskeið sem spanna hinar ólíku greinar sem kenndar eru við Háskóla Íslands. Háskóli unga fólksins er nú starfræktur í níunda sinn og hefur frá upphafi verið árviss sumarboði við Háskóla Íslands. Nemendahópurinn í ár er afar fjölbreyttur og kemur alls staðar af landinu. Þá eru í hópi nemenda verðlaunahafar í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna 2011 en meðal verðlauna í keppninni var boðskort í Háskóla unga fólksins. Nemendur hafa sjálfir búið til sínar stundatöflur. Alls stóð þeim til boða á fimmta tug námskeiða, þar á meðal námskeið í stjörnufræði, heimspeki, fornleifafræði, lögfræði, frumkvöðlafræði, kínversku og kynjafræði auk lyfjafræði. Kennsla í Háskóla unga fólksins er í höndum fræðimanna og framhaldsnema við Háskóla Íslands. Auk námskeiða í einstökum greinum hafa nemendur valið sér eina námsgrein á svokölluðum þemadegi miðvikudaginn 13. júní. Þá verja nemendur heilum degi í verkefni í greinum eins og fjölmiðlafræði, jarðvísindum, kvikmyndum, tölvunarfræði, viðskiptafræði og jafnrétti, lýðræði og stjórnmálum ásamt því að heimsækja stofnanir sem tengjast greinunum. Þannig munu nemendur í þemanu jafnrétti, lýðræði og stjórnmál heimsækja Jón Gnarr borgarstjóra í Ráðhús Reykjavíkur og fræðast um störf hans auk þess sem þingkonur taka á móti hópnum í Alþingishúsinu. Botninn verður sleginn í Háskóla unga fólksins á veglegri lokahátíð föstudaginn 15. júní. Efnt verður til veislu á Háskólatorgi og nemendur, starfsfólk og kennarar fagna saman góðri viku.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Fleiri fréttir Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Sjá meira