Innlent

Tom Cruise lenti á Reykjavíkurflugvelli fyrir stundu

Bílalest beið Cruise og ferðafélaga hans við komuna til landsins.
Bílalest beið Cruise og ferðafélaga hans við komuna til landsins.
Kvikmyndastjarnan Tom Cruise lenti nú fyrir stundu í einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli. Með í för er nokkurt fylgdarlið og fóru allir um borð í bílalest og óku rakleitt á brott. Í gær bárust fregnir af því að stjarnan væri komin til landsins og væri á Hilton Reykjavík Nordica. Þær fréttir virðast ekki hafa verið á rökum reistar.

Cruise er hingað kominn til þess að leika í stórmyndinni Oblivion og fara tökur fram norðan heiða. Fram hefur komið að hann muni dvelja í stórhýsin Hrafnabjörgum á Vaðlaheiði, á meðan á tökum stendur en eftir lendingu far farið rakleiðis á Hilton.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×