Innlent

Þyrla Landhelgisgæslunnar leigð í kvikmyndgerð

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Stuttu eftir að Tom Cruise lenti á Reykjavíkurflugvelli í morgun fóru þrjár þyrlur af stað í könnunarleiðangur á tökustaði myndarinnar Oblivion sem Cruise leikur aðalhlutverkið í. Um borð í þyrlunum voru framleiðendur og tökumenn myndarinnar og var ferðinni heitið meðal annars að Jarlshettum á Suðurlandi.

Athygli vakti að með í för var þyrla Landhelgisgæslunnar TF-SYN en samkvæmt upplýsingum frá Gæslunni var vélin leigð af Norðurflugi til þessa verkefnis í dag og á morgun. Tveir flugmenn á vegum Gæslunnar og einn flugvirki fylgja þyrlunni og kostar klukkutíminn í leigu 680 þúsund krónur.

Sindri Steingrímsson flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar sagði í samtali við fréttastofu í dag að þar sem Gæslan hefur nú þrjár þyrlur til taks er hægt að leigja eina þeirra út til annarra verkefna. Er það einungis gert í gegnum þyrlufyrirtæki og með skilyrði um að ef útkall kemur og nauðsynlegt er að nýta þyrluna fari hún í önnur verkefni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×