Enski boltinn

Heiðar Helguson fær samkeppni | Andy Johnson til QPR

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bobby Zamora og Andy Johnson eru sameinaðir á ný.
Bobby Zamora og Andy Johnson eru sameinaðir á ný. Nordicphotos/Getty
Framherjinn Andy Johnson er genginn í raðir Lundúnarfélagsins Queens Park Rangers. Johnson kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Fulham.

Johnson er annar leikmaðurinn sem gengurt til liðs við QPR á tveimur dögum. Í gær gekk nýsjálenski varnarmaðurinn Ryan Nelsen til liðs við félagið á frjálsri sölu frá Tottenham Hotspur.

Knattspyrnustjórinn Mark Hughes ætlar sér greinilega stóra hluti í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Leikmennirnir hafa báðir leikið undir stjórn Hughes; Nelsen hjá Blackburn og Johnson hjá Fulham.

Ljóst er að samkeppni um framherjastöðuna hjá QPR eykst enn frekar en sem kunnugt er leikur Heiðar Helguson með liðinu.

QPR tekur á móti Swansea á Loftus Road í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 18. ágúst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×