Viðskipti innlent

Óttar Pálsson: "Óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið“

Magnús Halldórsson skrifar
Óttar Pálsson, hrl.
Óttar Pálsson, hrl.
Alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar hafa í vegamiklum atriðum ekki verið innleiddir í íslensk lög, og það er vægt til orða tekið óheppilegt. Þetta kom fram í erindi Óttars Pálssonar hrl. á fundi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers í morgun.

Óttar, sem er meðal eigenda Logos lögmannsstofu, var meðal frummælenda á morgunverðarfundi í höfuðstöðvum Price Waterhouse Coopers í morgun, þar sem lög og reglur um endurskoðun, og ábyrgð endurskoðenda, voru til umfjöllunar.

Óttar fjallaði vítt og breitt um lagalegt umhverfi endurskoðunar, og sagði meðal annars að grunnbakbeinið í vinnu endurskoðenda, það eru alþjóðlegir endurskoðunarstaðlar, hefðu ekki verið innleiddir í íslensk lög nema að takmörkuðu leyti. Þetta sagði hann vera óheppilegt, svo vægt sé til orða tekið. Sagði hann ábyrgð endurskoðenda samkvæmt lögum, á þeirra áliti á reikningi, vera ótvíræða og fjallaði hann meðal annars um innlend og erlend dómafordæmi máli sínu til stuðnings.

Meðal annarra frummælenda á fundinum var Vignir Rafn Gíslason, endurskoðandi hjá Price Waterhouse Coopers en hann var meðal endurskoðenda Landsbankans fyrir hrun, sem slitastjórn þess banka hefur stefnt og krafist skaðabóta. Þá hefur Vignir Rafn einnig starfað fyrir slitastjórn Kaupþings.

Hann fjallaði ekki síst um stöðu íslenskra fjármálafyrirtækja árið 2007, og vitnaði til þess að samkvæmt ársreikningum allra fjármálafyrirtækja á Íslandi hefði eigið fé þeirra, að frádregnum víkjandi lánum, verið um eitt þúsund milljarðar króna og heildar eigið fé íslenskra fyrirtækja verið ríflega sjö þúsund milljarðar.

Sagði hann enn fremur að misjafnar aðferðir við framsetningu á ársreikningum, svonefnd hlutdeildaraðferð og síðan aðferð þar sem eignir eru settar fram á markaðsvirði, hefðu oft dregið upp gjörólíka mynd. Þannig hefði eigið fé Exista árið 2007 verið um hundrað milljörðum minna ef ekki hefði verið notast við hlutdeildaraðferð, heldur eignir færðar til bókar á markaðsvirði.

Fjallað verður nánar um þessi mál, sem til umfjöllunar voru á fundinum í morgun, í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×