Enski boltinn

Baines: Heiður að vera orðaður við Man. Utd

Baines er frábær spyrnumaður.
Baines er frábær spyrnumaður.
Enski landsliðsbakvörðurinn Leighton Baines hjá Everton er sterklega orðaður við Man. Utd þessa dagana en hann reynir að láta það ekki trufla sig frá undirbúningi fyrir EM.

Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, er sagður sjá þennan 27 ára leikmann fyrir sér sem arftaka Patrice Evra.

"Það er mikill heiður að vera orðaður við Man. Utd. Það er ekkert að því að tala um svona hluti því þetta er frábært félag. Ég er líka hjá frábæru félagi sem ég elska," sagði Baines.

"Ég er eingöngu að hugsa um EM núna og ég hef ekki tíma fyrir annað í augnablikinu. Ég get þó sagt að það yrði erfitt að fara frá Everton."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×