Enski boltinn

Scholes framlengdi við Man. Utd

Stuðningsmenn Man. Utd glöddust í dag þegar Man. Utd staðfesti að miðjumaðurinn Paul Scholes væri búinn að skrifa undir nýjan eins árs samning við félagið.

Scholes lagði skóna á hilluna síðasta sumar en sá svo eftir þeirri ákvörðun að draga þá niður aftur í janúar. Hann átti frábæra endurkomu í lið United og sýndi og sannaði að hann á nóg eftir.

Hann gaf sér þó tíma í að ákveða hvort hann treysti sér í eitt tímabil í viðbót og það er nú orðið raunin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×