Hálf lamaður eftir umræðu um Vaðlaheiðargöng Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. maí 2012 17:29 Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri á Akureyri.
Andstaða við frumvarp fjármálaráðherra um ríkisábyrgð vegna fjármögnunar Vaðlaheiðarganga gengur þvert á flokka, en það eru ekki bara þingmenn stjórnarandstöðunnar sem hafa lýst efasemdum um ágæti málsins. Samkvæmt frumvarpinu fær fjármálaráðherra heimild til að undirrita lánasamning við Vaðlaheiðargöng hf. fyrir allt að 8,7 milljarða króna á föstu verðlagi, í árslok 2011. Þá upphæð á síðan að endurgreiða með veggjöldum. En lánið og framkvæmdin eru afar umdeild. Stuðningsmenn framkvæmdarinnar segja hins vegar að göngin séu þjóðhagslega hagkvæm og skapi mörg störf. Umræður um frumvarpið stóðu fram eftir miðnætti á Alþingi í fyrrinótt. Lítið fór fyrir stuðningsmönnum þess og gerðu bæði stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar verulegar athugasemdir við málið eins og það kemur fram. Umræðu um frumvarpið verður líklegast fram haldið í þinginu að nýju um miðja næstu viku.„Skiljum ekki í hvaða farveg málið er komið í" Eiríkur Björn Björgvinsson bæjarstjóri á Akureyri er ekki bjartsýnn eftir að hafa fylgst með umræðunni. „Maður er eiginlega bara hálf lamaður sérstaklega vegna þess hversu umræðan var ómálefnaleg. Við skiljum ekki í hvaða farveg málið er komið í því þegar við fórum af stað með þetta verkefni vorum við með þinginu því þingið ákvað að það ætti að stofna félag utan um þetta og við ákváðum að taka þátt í því að þeirra ráðum. Núna snýst þetta um að við höfum verið að troða okkur fram fyrir og málflutningur gagnvart okkur hér fyrir norðan er með miklum ólíkindum," segir Eiríkur Björn. Hann segir að engar framkvæmdir hjá ríkinu séu áhættulausar. „Mér finnst fókusinn snúast allt of mikið um það sem hugsanlega gæti orðið einhvern tímann í framtíðinni í stað þess að horfa til þess að hér er um að ræða verkefni til lengri tíma og við getum alveg lagað okkur að því hvert nýtingarhlutfall af framkvæmdinni verður," segir bæjarstjórinn á Akureyri áhyggjufullur. Nokkur sundrung er meðal stjórnarliða um framkvæmdina, eins og áður segir. Steingrímur J.Sigfússon, formaður VG, hefur hins vegar lagt mikla áherslu á að málið fái brautargengi. Hann sagðist í samtali við fréttastofu í dag vonast til að þingið afgreiddi frumvarpið sem lög og sagðist vongóður um það nyti stuðnings, þrátt fyrir óánægju nokkurra stjórnarþingmanna. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Ofstækisfullar sértrúarskoðanir eru einfaldlega eitur“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sjá meira