Innlent

Sigríður Ingibjörg útilokar ekki formannsframboð

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, sem varð í öðru sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, útilokar ekki framboð til formennsku Samfylkingarinnar eftir áramót. Niðurstaða prófkjörsins þýðir að Sigríður Ingibjörg mun leiða annað Reykjavíkurkjördæmið. Össur Skarphéðinsson, sem var í fyrsta sæti, leiðir hitt.

„Ég hef haldið þeirri spurningu opinni og það er óbreytt. Núna í kvöld erum við að fagna þessari niðurstöðu og glæsilegum listum í Reykjavík og síðan verður það að ráðast næstu vikur hvað gerist í flokknum," segir hún. Hún segist afskaplega þakklát fyrir þann stuðning sem hún fékk í kvöld.

„Mín viðbrögð eru bara fyrst og fremst þau að ég er mjög þakklát félögum mínum fyrir það að hafa falið mér þessa ábyrgð og ég ætla mér að standa undir henni. Svo vil ég óska Össuri Skarphéðinssyni til hamingju með glæsilegan árangur og einnig Oddnýju Harðardóttur sem náði gríðarlega góðum árangir á Suðurlandi," segir hún. „En ég er á þessari stundu bara fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa fengið þennan afgerandi stuðning," segir hún ennfremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×