Gagnrýna fjölda skipulagsdaga leikskóla - foreldrar þöglir þolendur 29. apríl 2012 13:41
Fjöldi skipulagsdaga á leikskólum hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum samkvæmt grein sem finna má á vef Samtaka atvinnulífsins þar sem þessi fjölgun er gagnrýnd til hliðsjónar af því að foreldrar þurfi að ganga á orlof sitt til þess að standa undir skipulagsdögum leikskólanna. Í greininni segir meðal annars: „Á fundi skóla- og frístundaráðs, 21. mars 2012 og í borgarráði 29. mars, var samþykkt tillaga um fjölgun skipulagsdaga í leikskólum Reykjavíkurborgar úr fimm í sex á ári. Samþykktin tekur gildi 1. júní 2012. Sex dagar á ári er mikill tími fyrir framangreindar umræður. Foreldrar þurfa yfirleitt að nýta orlofsrétt sinn á þessum dögum og nemur þessi dagafjöldi fjórðungi lágmarksorlofs. Svo virðist sem nokkur misbrestur sé á samstarfi grunnskóla og leikskóla um þessa frídaga sem bitnar illa á foreldrum með börn á báðum skólastigum." Þannig kemur fram í greininni að einhliða fjölgun skipulagsdaga bitni illa á foreldrum og fyrirtækjum. „Foreldrar ungra barna eru þöglir þolendur sem virðast ekki eiga auðvelt með að bera hönd fyrir höfuð sér," segir í greininni. Endurskoða þarf þessi vinnubrögð í leikskólastarfi og leggja meiri áherslu á þjónustu við foreldra og atvinnulíf að mati Samtaka atvinnulífsins sem vill jafnframt leggja sitt lóð á þær vogarskálar að skapa umræðu um hvernig megi gera endurbætur á skipulagi leikskólastarfsemi þannig að foreldrar ungra barna þurfi ekki að ráðstafa stórum hluta orlofsins á hverju ári vegna skipulagsdaga. Hægt er að lesa greinina í heild sinni hér.
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Fleiri fréttir Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Sjá meira