Zlatan hafnaði Arsenal fyrir tólf árum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. mars 2012 21:15 Nordic Photos / Getty Images
Zlatan Ibrahimovic segist hafa hafnað tækifæri til að æfa með Arsenal þegar hann var enn að spila með æskufélagi sínu, Malmö í Svíþjóð. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hafði samband við Zlatan árið 2000 með það fyrir augum að ræða við hann um möguleg vistaskipti til Lundúna. „Arsene gaf mér þessa frægu Arsenal-treyju, númer níu og með nafnið mitt á bakinu," sagði Zlatan í samtali við The Sun. „Ég var svo ánægður að ég lét taka mynd af mér í henni." „Þetta var frábær stund fyrir mig. Arsenal var með frábært lið á þessum tíma og ég fékk mína eigin Arsenal-treyju sem hafði verið sérstaklega gerð fyrir mig." „Svo beið ég eftir því að hann myndi sannfæra mig um að koma til Arsenal. En hann reyndi ekki einu sinni. Það var ekkert tilboð, bara boð um að koma á reynslu og æfa með liðinu." „Ég bara trúði þessu ekki. Ég sagði að það væri ekki glæta - Zlatan fer ekki á reynslu. Annað hvort þekkti hann mig eða ekki og ef hann þekkti mig ekki hafði hann í raun ekki raunverulegan áhuga á að fá mig." Ibrahimovic fór þess í stað til Ajax og hefur síðan þá sspilað með Juventus, Inter, Barcelona og nú AC Milan. AC Milan vann 4-0 sigur á Arsenal í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á dögunum og hann skoraði þrennu á aðeins fjórtán mínútum er AC Milan vann Palermo í gær, 4-0.
Mest lesið Sonurinn smitaði Aron af handa-, fóta- og munnsjúkdómi Handbolti Bubbi segir Eriku Nótt oft hafa verið betri: „Veit ekki hvað var að plaga hana“ Sport Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Enski boltinn Ótrúleg endurkoma og allt jafnt í úrslitaeinvíginu Körfubolti Dagskráin í dag: Sjóðheitir Valsmenn og Opna bandaríska Sport Tíu sem gætu stolið senunni á HM 2026 Fótbolti Litla systir Duplantis með besta árangur ársins Sport Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Enski boltinn Börnin vilja sjá þá sænsku blóðga Eriku Sport ÍR áfram taplaust á toppnum eftir sigur í Breiðholtsslag Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þrátt fyrir að vera með fimm vill Newcastle einn markvörð til viðbótar Guðlaugur Victor fær nýjan þjálfara Tottenham leitar réttar síns eftir ákvörðun INEOS Vilja að Mbeumo elti stjórann Veltir því fyrir sér hvort „24 klukkutíma reglan“ lifi af vistaskiptin Gamli liðsfélagi Arnars og Bjarka gæti bæst í þjálfarateymi Liverpool „Barcelona og Real Madrid hefðu rekið mig“ Fer fyrst í frí en semur svo við Liverpool Borga fimm milljarða fyrir táning Man. Utd með í slaginn um Ekitike Daninn orðinn stjóri Tottenham Funduðu á eyju um kaup Arsenal á Gyökeres Draumur Cunha rættist Grealish fer ekki með á HM félagsliða Liverpool að landa dýrasta leikmanni í sögu deildarinnar City staðfestir kaupin á Reijnders Sendi sónarmynd: Tvö ákærð eftir fjárkúgun gamallar kærustu Vilja tæpa tólf milljarða fyrir Garnacho Arftaki hins titlaóða Carsons fundinn Man City staðfestir kaupin á Cherki Forest vill niðurstöðu í mál Palace Man City ræður annan úr teymi Klopp hjá Liverpool Chelsea vill Gittens áður en glugginn lokar Allt klárt og Frank verður næsti stjóri Tottenham Aït-Nouri fyrstur inn um dyrnar hjá Man City Segja Man United hafa sett í samband við Sporting vegna framherjans eftirsótta City að festa kaup á hinum eftirsótta Cherki Thomas Frank að taka við Tottenham Fer frá City eftir aðeins tvo leiki en tólf titla á sex árum Liverpool hækkar tilboð sitt Sjá meira