Stórt próf hjá Lin í kvöld | New York heimsækir Miami Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2012 22:45 Jeremy Lin. Mynd/Nordic Photos/Getty
Jeremy Lin og félagar í New York Knicks þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigrinum á Atlanta Hawks í NBA-deildinni í körfubolta í fyrrinótt en það má búast við því að það bíði þeirra talsvert erfiðari leikur í nótt. New York heimsækir þá stjörnulið Miami á Flórída en þetta er síðasti leikur liðanna fyrir Stjörnuleikinn sem fram fer í Orlando á sunnudaginn kemur. Það má segja að súperstjörnur Miami, LeBron James og Dwyane Wade, hafi eins og allir aðrir leikmenn NBA-deildarinnar fallið í skuggann á Jeremy Lin síðustu vikurnar og ef menn þekkja þá James og Wade ætla þeir örugglega að sýna mátt sinn og megin í kvöld. Jeremy Lin hefur skorað 23,9 stig og gefið 9,2 stoðsendingar að meðaltali í leik í síðustu ellefu leikjum New York en Knicks-liðið hefur unnið 9 þeirra þar af alla þrjá gegn liðum sem hafa verið með yfir 50 prósent sigurhlutfall. Miami-liðið hefur verið á mikilli siglingu enda búið að vinna sjö leiki í röð og þá alla með tólf stigum eða meira. Miami hefur jafnframt unnið 14 af 16 heimaleikjum sínum á tímabilinu þar á meðal 99-89 sigur á New York í síðasta leik liðanna 27. janúar en Lin fékk ekki eina einustu mínútu í þeim leik. Leikurinn hefst klukkan sjö að bandarískum tíma eða á miðnætti á íslenskum tíma.
NBA Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Fleiri fréttir „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ KR á toppinn Uppgjörið: Grindavík - Haukar 92-93 | Fullkomin jólagjöf Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Rýndu í gamlar myndir: „Svakalega ertu kringlóttur í framan“ Guðbjörg fyrsta konan í fjögur hundruð leikina Stjarnan og Grindavík mætast í bikarnum Tryggvi og Sara best á árinu New York Knicks vann titil í nótt Umfjöllun: Keflavík 97 - 84 Ármann | Sannfærandi sigur heimakvenna Martin áfram í sextán liða úrslit Meistaradeildarinnar Valskonur ekki í neinum vandræðum á heimavelli Segir að Keflvíkingar hafi ekki þolað gott umtal Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Stjarnan jók á raunir Álftaness og Valsmenn slógu ÍR-inga út „Auðvitað var þetta sjokk“ Skór sem Jordan notaði seldust á tæplega níutíu milljónir Sagði fyrst nei við beiðni Kjartans: „Menn hálf skammast sín“ Breyttist úr hetju í skúrk: Rekinn út af fyrir að ögra LeBron „Troðslan sem þið sjáið núna verður ekki toppuð“ Tindastóll, Keflavík og KR brunuðu áfram í bikarnum Hilmar með frábærar mínútur og risaþrist í dramatískum sigri Aftur og nýbúnir en núna í bikarnum KR, Aþena og Tindastóll örugglega áfram í bikarnum Íslandsmeistararnir unnu bikarmeistarana í framlengingu Elvar leiddi liðið til sigurs Tryggvi lét mest til sín taka Wembanyama sneri aftur í sigri gegn meisturunum Jónína Þórdís gældi við þrennuna og Ármann fór áfram í bikarnum Sara Rún með sigurkörfuna í ótrúlegri endurkomu Keflavíkur Sjá meira