Innlent

Eyjamenn snöggir að hala inn fyrir Landeyjahöfn og nýrri ferju

Kristján Már Unnarsson skrifar
Gjaldeyristekjur sem Vestmannaeyingar skapa á tíu vikna loðnuvertíð stefna í að verða álíka miklar og kostnaður við bæði Landeyjahöfn og nýjan Herjólf.

Skip Vinnslustöðvarinnar, Sighvatur Bjarnason, sést á myndum Gísla Óskarssonar, sem sýndar voru í fréttum Stöðvar 2, sigla inn til Vestmannaeyja síðastliðið laugardagskvöld með tólfhundruð tonn af loðnu en skipið er síðan aftur væntanlegt í nótt með annað eins.

Stóraukinn loðnukvóti þýðir mikla búbót fyrir Eyjarnar. Þar er allt komið á fullan snúning og bátarnir koma nú inn í bunum til að landa, segir framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson. Hann segir að mesta áherslan sé á að vinna lýsi og mjöl, sem gefi mestar tekjur um þessar mundir, en þegar nálgist hrygningu taki við hrognavinnsla og frysting.

Þeir markaðir séu hins vegar þyngri, sérstaklega í hrygnunni, en þeir muni þó slást á hrognamarkaði, segir Binni í Vinnslustöðinni, eins og hann er jafnan nefndur í Eyjum. Hann segir þetta verða bræðsluvertíð að stórum hluta, enda sé verðmæti þeirra afurða nú tvöfalt til þrefalt hærrra en fyrir nokkrum árum.

Fyrirtæki Eyjamanna, Ísfélagið og Vinnslustöðin, eru með um þrjátíu prósent loðnukvótans en Ísfélagið vinnur hluta aflans á Þórshöfn. Sigurgeir Brynjar spáir því að af 30 milljarða króna búhnykk þjóðarbúsins vegna loðnuvertíðar verði fimm til átta milljarðar til í Vestmannaeyjum á næstu tveimur mánuðum.

Margir hafa býsnast yfir kostnaði við Landeyjahöfn og smíði nýrrar Vestmannaeyjaferju. Átta milljarða króna kostnaður fyrir höfn og ferju er þó álíka og vænta má að Eyjamenn skapi í gjaldeyristekjur af loðnuvertíð á nokkrum vikum og virkar sem smáræði miðað við gjaldeyrisöflun Eyjmanna á ári þegar þorskurinn, makríllinn og allar hinar tegundirnar eru lagðar saman. Binni segir verðmæti útfluttra sjávarafurða frá Vestmannaeyjum á bilinu 30-35 milljarðar króna á ári, eða um 15% af útflutningstekjum sjávarútvegs. Það segir hann mikið miðað við 4.200 manna samfélag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×