Sesum fékk pílu í augað - gæti misst sjónina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. janúar 2012 15:15 Sesum á flugi gegn Makedónum á EM. Nordic Photos / Getty Images
Handknattleiksmaðurinn Zarko Sesum fékk pílu í augað þegar hann gekk af velli að loknum sigri Serba á Króötum í undanúrslitum Evrópumótsins í handknattleik í gær. Talið er líklegt að hann missi sjón á auganu. AFP-fréttastofan greinir frá þessu. „Einhver í stúkunni ætlaði að henda pílu í Ivano Balic en hún fór í Zarko Sesum. Hann er á spítala. Við óttumst að hann muni missa sjón á auganu," sagði fulltrúi króatíska landsliðsins við AFP-fréttastofuna. „Andrúmsloftið og söngvarnir voru til skammar. Það var sungið um morð og þess háttar. Það er sorglegt en við áttum svo sem von á þessu," bætti hann við.Serbarnir hafa aðra sögu að segja Lýsing fulltrúa serbneska landsliðsins á atburðunum er önnur en Króatanna. Á vef Aftenposten kemur fram að ekki hafi verið um pílu að ræða heldur flösku eða mynt. Þá virðast þeir ekki hafa áhyggjur af því að Sesum missi sjónina. Serbarnir segja að aðskotahluturinn, hver svo sem hann var, hafi verið ætlaður þjálfara Króatanna, Slavko Goluza. Þá vonast þeir til að Sesum geti spilað úrslitaleikinn gegn Dönum á morgun.
Handbolti Mest lesið Er nýi Haaland íslenskur? Fótbolti Veggmynd hetju Spánverja á HM eyðilögð strax Fótbolti Bergrós meðal fimmtán efstu eftir fyrsta daginn Sport Verið að rannsaka Inter Miami eftir kaupin á Casemiro Fótbolti Þurfti að hætta við æfingu eftir mótmæli leikmanns Fótbolti Fengu þyngd sína í tómötum fyrir að verða heimsmeistarar Fótbolti Féll í yfirlið í miðjum leik Sport Messi er mesti yfirburðamaður eins liðs í HM-sögunni Fótbolti Kærustuparið gerði það sem engum hafði tekist í sögu heimsleikanna Sport Mæra Messi fyrir muninn á færslum hans eftir sigur- og tapleiki Fótbolti Fleiri fréttir „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Sjá meira