Birkir Jón víkur fyrir Sigmundi BBI skrifar 22. september 2012 13:10 Birkir Jón Jónsson.
Birkir Jón Jónsson, varaformaður Framsóknarflokksins, ætlar ekki að gefa kost á sér til áframhaldandi þingsetu eftir líðandi kjörtímabil og mun ekki sækjast eftir endurkjöri sem varaformaður flokksins. Í stað hans hyggst Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sækjast eftir að vera í framboði fyrir flokkinn í Norðausturkjördæmi þar sem Birkir Jón var áður oddviti. „Ég hef á slíðastliðnum 15 árum helgað líf mitt stjórnmálum og á þessum tímapunkti hef ég ákveðið að snúa mér að öðrum verkefnum. Ég vil þakka framsóknarfólki um allt land frábært samstarf síðustu ár og er ákaflega þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt sem varaformanni Framsóknarflokksins og oddvita í Norðausturkjördæmi," segir Birkir og tekur fram að persónulegar ástæður séu fyrir því að hann stígur til hliðar.Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.Mynd úr safniVið sama tilefni þakkar Sigmundur Davíð Birki fyrir ánægjulegt samstarf og óskar honum gæfu í framtíðinni. „Samskipti okkar Birkis hafa frá upphafi verið frábær," segir hann og lýsir því yfir að nú þegar Birkir hverfur á braut hyggist hann sjálfur sækjast eftir að vera í framboði í Norðausturkjördæmi þar sem Birkir leiddi áður. Þar vill hann taka þátt í baráttu fyrir því að flokkurinn endurheimti stöðu sína sem stærsti flokkur kjördæmisins. Birkir fagnar því að Sigmundur bjóði sig fram í kjördæminu og segist sjálfur hafa hvatt hann til þess að undanförnu.Prófkjörsslagur Þessar hrókeringar ber upp degi eftir að fréttir spurðust af því að Höskuldur Þórhallsson, þingmaður Framsóknarflokksins, ætlaði í baráttu um fyrsta sætið í Norðausturkjördæmi. Hann skipaði 2. sætið í fyrra eftir að hafa tapað fyrir Birki Jóni. Nú lítur út fyrir að það verði Höskuldur og Sigmundur sem takast á um fyrsta sætið í kjördæminu eftir að Birkir stígur til hliðar.
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent Fleiri fréttir Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Sjá meira