Annþór ávarpaði dóminn: Varla ofbeldi að hrækja á skikkju dómara 22. nóvember 2012 18:46 Annþór í Héraðsdómi Reykjavíkur. „
Það sem stendur hérna er rangt!" sagði Annþór Karlsson í Héraðsdómi Reykjaness í kvöld. Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum, Berki Birgissyni og átta öðrum er nú lokið. Við upphaf aðalmeðferðar í dag fóru þeir fram á að ávarpa dóminn að lokinni aðalmeðferð. Annþór hóf ávarp sitt klukkan 17:50, eftir að sækjandi og verjandi höfðu lokið sínu máli. Rétt eins og lögmaður hans, Guðmundur St. Ragnarsson, hafði ítrekað bent á, vildi Annþór vekja athygli á vissum þáttum sem lúta að rannsókn lögreglu á líkamsárásarmáli sem átti sér stað í Mosfellsbæ þann 4. janúar á þessu ári. „Rannsóknin er búin að vera léleg og ég er því miður hræddur um að það sé búið að ákveða þennan dóm fyrir löngu, að það sé aðeins formsatriði að halda þessi réttarhöld. Það er ekki tekið tillit til okkar og hefur aldrei verið gert." Þá fór Annþór hörðum orðum um ríkissaksóknara. „Ríkissaksóknari segir að allir brotaþolar hafi hlotið beinbrot og af þeim sökum ber að dæma mig í gæsluvarðhald. Sakargiftirnar eru rangar og hafa verið það frá byrjun þessa máls. Það hefur komið fram að bæði lögregla og aðrir glæpamenn eru búnir að biðja menn um að bera ljúgvitni gegn mér. Svo virðist sem að því sé bara sópað undir mottu og virðist ekki skipta máli." Dómari ítrekaði þá fyrir Annþóri að algjör óþarfi væri að vísa í gögn málsins og atriði sem saksóknari og verjendur hefðu nefnt. „Mér finnst þetta skipta máli," sagði Annþór þá og dómari svaraði: „Ekki endurflytja málið." Þá vildi Annþór ítreka að sá viðbúnaður sem lögreglan hefur haft í kringum aðalmeðferðina hafi verið óþarfi. „Ég og Börkur höfum verið edrú í langan tíma. Bergur Már [brotaþoli] hefur sagt að hann hafi verið útúrdópaður á þessum tíma. Það er merkilegt að framburður þeirra sé tekinn fram yfir okkar." „Það er búið til show um að við séum hættulegir, fluttir á milli staða. Það var aðeins eitt slíkt tilfelli hjá Berki. Hann hrækti á skikkju dómara, sem ég tel nú varla vera ofbeldi."
Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira