Virðist sem óréttlætið hafi náð út yfir gröf og dauða 20. ágúst 2012 09:15 Ein þeirra grafa sem geymir Hugsast getur að þarna séu jarðneskar leifar manns sem minna mátti sín meðan hann var og hét og þær því ekki fluttar yfir í nýja kirkjugarðinn.mynd/guðný zöega
Á Seylu er miðaldakirkjugarður nokkur sem kemur reyndar við sögu í Sturlungu en þar var skagfirski höfðinginn Oddur Þórarinsson grafinn. Þessi vígfimasti maður landsins var reyndar í banni þegar hann var veginn svo hann mátti ekki liggja í vígðri mold. En menn dóu ekki ráðalausir á Sturlungaöld svo hann var grafinn inn undir kirkjuvegginn á Seylu. Það kom fornleifafræðingum því á óvart þegar þeir voru að fara að skoða þennan miðaldakirkjugarð að bandarískir sérfræðingar komu niður á annan kirkjugarð þegar þeir voru við jarðsjárrannsóknir á fornu bæjarstæði Seylubæjar sumarið 2009. Einnig fundust þar leifar lítils mannvirkis sem líklega hefur verið kirkja. Guðný Zoëga fornleifafræðingur telur að sá kirkjugarður hafi verið aflagður nokkru fyrir gjóskufallið mikla úr Heklu 1104. Nú í sumar er búið að skoða þar sjö grafir og segir Guðný það athyglisvert sem þar fannst og eins hitt sem ekki fannst. Af þessum sjö gröfum voru aðeins bein í fjórum. Hvað veldur því? „Í kristnirétti lögbókarinnar Grágásar, sem ritaður var á fyrri hluta 12. aldar, er ákvæði um að bein skuli flutt úr kirkjugörðum séu þeir, einhverra hluta vegna, lagðir niður,“ segir hún. „Í raun vitum við ekki hvenær þessi lög urðu virk en þetta gæti verið til marks um að þarna hafi þessum sið eða lögum verið fylgt.“ Það vekur einnig athygli hvaða grafir eru tómar en það eru þær sem eru nær kirkjunni, sem staðið hefur í miðjum kirkjugarðinum. Þar var venjulega heldra fólk grafið niður en hinir sem minna máttu sín fengu að hvílast út við kirkjugarðsvegginn. Það gæti verið vísbending um að menn hafi haft minna fyrir því að flytja leifar almúgafólksins þegar kirkjugarðurinn var aflagður. Guðný segir þó ekki loku fyrir það skotið að aðrar og hversdaglegri ástæður geti legið þar að baki. „Kannski var þetta bara tímasparnaður að taka svona innst úr garðinum,“ segir hún. Eins vakna spurningar sem snúa að samviskusemi fornmannanna en þeir virðast aðeins hafa tekið hluta af líkamsleifunum úr sumum gröfum. Til dæmis hefur sköflungur og fótabein orðið eftir í tveimur gröfum. jse@frettabladid.is
Mest lesið „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Vegfarendur hvattir til að fylgjast með viðvörunum Veður Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „One love“ til allra í kommentakerfinu Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Bílvelta austan við Hvalnes Innlent Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Innlent Fleiri fréttir „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Íris Dröfn settur sýslumaður á Austurlandi „Miklar vendingar núna í málefnum bæjarins“ Verða höfð með í ráðum vegna niðurrifsins við Sæbraut „Lögregla á að bregðast við refsiverðri háttsemi“ Ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna áreksturs þar sem tveir létust Misboðið vegna ömurlegrar gyðingaandúðar Gyðingaandúð, netsala áfengis og skólahald í Grindavík Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Simmi biður Söndru og sjúkraliðana afsökunar Tugir innbrota til rannsóknar hjá lögreglu Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Sjá meira