Innlent

Vilja lögfesta samning um réttindi fatlaðra

BBI skrifar
Mynd/Stefán Karlsson
Stjórn Öryrkjabandalags Íslands skorar á Alþingi að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þetta var samþykkt á aðalstjórnarfundi bandalagsins í gær.

Samningurinn var undirritaður af Íslands hálfu árið 2007. Öryrkjabandalagið telur nauðsynlegt að lögfesta hann einnig eins og gert var við Mannréttindasáttmála Evrópu. „Þannig tryggjum við mannréttindi fyrir alla í raun," segir í fréttatilkynningu.

Bandalagið vill lögfesta samninginn nú þegar en hins vegar telur það einnig þörf á því að endurskoða íslenska þýðingu samningsins. Þar er „bæði um að ræða hreinar rangfærslur og misskilning á hugtakinu fötlun," segir í fréttatilkynningu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×