Innlent

Engar ákvarðanir teknar um ákæru á hendur mótmælendum

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Snærós Sindradóttir segir að sér hafi verið tilkynnt að hún yrði kærð fyrir mótmæli.
Snærós Sindradóttir segir að sér hafi verið tilkynnt að hún yrði kærð fyrir mótmæli. mynd/ stefán.
Engar ákvarðanir hafa verið teknar um ákæru á hendur fólki sem mótmælti við rússneska sendiráðið í Garðastræti fyrr í sumar. Jón HB Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri, staðfestir í samtali við Vísi að mál nokkurra aðila séu í rannsókn og þau mál séu ennþá til meðferðar hjá embættinu.

Snærós Sindradóttir, ein mótmælendanna, sagði í samtali við fjölmiðla í dag að óeinkennisklæddur lögreglumaður hefði tilkynnt sér, við mótmæli í morgun, að til stæði að kæra hana og þrjá aðra vegna mótmælanna fyrr í sumar.

Mótmælendur kunna að hafa brotið gegn 95. grein almennra hegningarlaga. Hún hljóðar svo:

„Hver, sem opinberlega smánar erlenda þjóð eða erlent ríki, æðsta ráðamann, þjóðhöfðingja þess, fána þess eða annað viðurkennt þjóðarmerki, fána Sameinuðu þjóðanna eða fána Evrópuráðs, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum. Nú eru sakir miklar og varðar brot þá fangelsi allt að 6 árum."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×