Innlent

Ekkert komið fram sem kallar á breytingar á sænsku leiðinni

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Ekkert hefur komið fram sem kallar á breytingar á Sænsku leiðinni svokölluðu, sem ætlað er að stemma stigu við vændi hér á landi að sögn innanríkisráðherra.

Undanfarið hafa tvær skýrslur komið fram þar sem deilt er á þessa leið sem nokkrar þjóðir, þar á meðal Íslendingar, hafa tekið upp. Annarsvegar er um að ræða skýrslu Þróunarstofnunar Sameinuðu þjóðanna þar sem segir að ekki hafi borið árangur að gera kaup á kynlífsþjónustu refsiverð, hvorki í baráttu gegn mansali né gegn útbreiðslu HIV-veirunnar. Hinsvegar er um að ræða skýrslu sem ein af undirstofnunum félagsþjónustunnar í Osló hefur birt. Þar er fullyrt að sænska leiðin hafi leitt til þess að nú sé enn erfiðara en áður að koma fórnarlömbum mansals til bjargar.

„Báðar mæla þær með því að allt verði gert sem unnt er til að færa vændið upp á yfirborðið," segir Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.

Hann bendir á að skýrsla Sameinuðu þjóðanna sé unnin af aðilum sem eru að berjast gegn eyðni.

„Ég held að þetta verði að hafa í huga þegar niðurstöður skýrslunnar eru skoðaðar. Sjálfum finnst mér ekkert þar hafa komið fram sem er þess valdandi að við tökum þessi mál til enduskoðunar hér," segir hann.

Sérhæft lögregluteymi gegn mansali hefur enn ekki verið stofnað eins og þriggja ára gömul aðgerðaáætlun gerði ráð fyrir. Ögmundur segist vonast til að það standi til bóta.

„Við settum sérstakt fjármagn til lögreglunnar til að efla baráttu gegn alvarlegri brotastarfsemi. Og áherslan hefur verið sú að það verksvið þeirra aðila sem með það eiga að gera taki til vændis og mansals og mála sem því tengjast."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×