Aðsókn í leikhús er svipuð og fyrir hrun 21. september 2012 04:00 Ein vinsæl sýning getur snaraukið aðsókn í leikhús það leikárið. Leikhúsgestir á síðasta leikári voru um 417 þúsund talsins.
Alls voru settar upp 264 leiksýningar á landinu á síðasta leikári. Gestir voru um 417 þúsund, sem er svipað og leikárið þar á undan. Áhugaleikfélög settu upp 572 sýningar á síðasta leikári. Aðstaða þeirra hefur versnað í höfuðborginni. Landinn vill sitt leikhús og efnahagshrunið hefur ekki sett stórt strik í reikninginn hvað aðsókn að leiksýningum varðar. Þegar tölur frá Hagstofu Íslands eru skoðaðar sést að aðsóknin dróst verulega saman leikárið 2008/9, en náði sér á strik strax árið eftir. Alls voru 3.378 sýningar á 264 uppfærslum á síðasta leikári. Áhugaleikfélög blómstra, en 89 uppfærslur voru á vegum þeirra sem drógu að sér tæplega 39 þúsund gesti. Ásta Gísladóttir, formaður áhugaleikfélagsins Hugleiks, segir að hrunið hafi ekki haft teljandi áhrif á aðsókn þar á bæ. Aðstaðan sé hins vegar vandamál. „Aðstaða áhugaleikhúsa og lítilla leikhópa til að setja upp sýningar í Reykjavík hefur snarminnkað. Við notuðum Tjarnarbíó mjög mikið, en eftir að Reykjavíkurborg tók það í gegn og þar var settur upp sjálfstæður rekstur er leigan á því fjárhag okkar ofviða. Þá var Möguleikhúsið selt undir aðra starfsemi. Möguleikarnir á að setja upp stórar sýningar hafa því minnkað.“ Ásta segir að stórar og mannmargar sýningar dragi að fleiri gesti. Þá séu sýningar í þekktum rýmum meira áberandi og það dragi frekar gesti að. „Við höfum þurft að sníða okkur stakk eftir vexti og setja upp verk sem eru minni um sig, í minni rýmum og þá fyrir færri áhorfendur. Þegar við höfum sett upp mannmargar og fjörugar sýningar hefur fleira fólk komið, en þegar við setjum upp minni sýningar með færri leikurum er aðsóknin í takt við það.“ Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, segir að hrunið hafi ekki haft neikvæð áhrif á aðsóknina. „Það kom því engin dýfa hjá okkur. Þvert á móti jókst aðsóknin árið 2008 og síðan hefur hún aukist skref fyrir skref. Síðustu leikár eru þau aðsóknarmestu í sögu leikhússins.“ Magnús segir að mestu máli skipti að tekist hafi að auka sölu áskriftarkorta til muna. „Korthöfum fjölgaði úr 500 í rúmlega ellefu þúsund hjá okkur og það skýrir að einhverju leyti betri aðsókn.“ kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent Skafið og saltað Veður „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Fleiri fréttir Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Tvö á einu rafmagnshlaupahjóli og flutt á bráðamóttöku „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Ræddu ofbeldi í skólum í borgarstjórn: Segir kennara vera í legghlífum í vinnunni Sigurvin kallaður út vegna Hildar Ekki tilraun til manndráps að taka sambýliskonuna kverkataki Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna plássleysis Stefna á að hefja leit í nóvember Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Bein útsending: Fyrsta skóflustunga að Stóra-Hrauni Dómurinn feli í sér tilmæli til þingsins Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Komi ekki til greina að hætta við talnakvarðann Kallað eftir rannsóknum vegna geðrofslyfs og áskorun til ráðherra Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Endurmeta fyrirkomulag RS-bólusetninga næstu árin Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Tekur sæti Maríu sem er í fríi í Víetnam Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Sjá meira