Innlent

Flugfarþegi fór úr mjaðmarlið

Leifsstöð.
Leifsstöð.
Lögreglunni á Suðurnesjum var í fyrradag tilkynnt um að flugvél frá British Airways þyrfti að lenda á Keflavíkurflugvelli þar sem veikur farþegi væri um borð í henni.

Í ljós kom að farþeginn, þýsk kona, hafði orðið fyrir því að fara úr mjaðmarlið í vélinni.

Hún hafði fyrir nokkrum árum farið í mjaðmaliðsskipti. Konan var flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×