Ungur hælisleitandi vill ekki yfirgefa Ísland Karen Kjartansdóttir skrifar 26. ágúst 2012 20:58
Fimmtán ára hælisleitandi, sem í vor var dæmdur í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum, segist aldrei vilja yfirgefa Ísland aftur. Hann stefnir á nám og langar að keppa í fótbolta með ÍR. Í vor komst mál Bilals í fréttir eftir að hann og félagi hans höfðu verið dæmdur í fangelsi fyrir að framvísa fölsuðum vegabréfum þótt báðir segðust þeir vera undir átján ára aldri. Fangelsismálastofun og Barnaverndarstofa gripu inn í málið og komu Bilal í fóstur hjá Ingibjörgu og Salmann Tamimi. Þar hefur hann dvalið í fjóra mánuði og eins og sjá má hefur hann slegið í gegn hjá barnabörnum þeirra hjóna. „Felstum finnst þetta alveg stórfínt og frábært að gefa stráknum tækifæri til að gera eitthvað úr lífi sínu. Við reynum náttúrulega okkar besta við að aðstoða hann við það. Hann er í fótbolta og í íslensku og hann er farin að skilja mjög mikið og getur farið út um allt. Við erum mjög ánægð með hann. Hann er mjög góður strákur," segir Salmann. Eins og greint var frá í sumar leiddi aldursgreining á tönnum hælisleitendanna í ljós að allir þeir sem sögðust vera börn reyndust yfir átján ára aldri nema Bilal. Hinir hafa dvalist á Fit í Reykjanesbæ, sumir komist æði oft í fréttir fyrir að reyna komst úr landi. Ingibjörg og Salmann segjast ekki undrandi á því að þeir reyni að stinga af enda sé ekkert við að vera á Fit. Umræðan bitni hins vegar illa Bilal.Hafið þið fengið spurningar um hvort hann sé að reyna að stinga af? spyr fréttakona. „Já margar spurningar, en hann er ekki þannig, hann vill eiga gott líf og það ætlum við að reyna að gefa honum," segir Ingibjörg. „Á mbl.is var einu sinni fullyrt að strákurinn sem væri í fóstri hefði verið handtekinn. Ég hafði setið með honum til klukkan eitt um nóttina og sá í fréttunum að hann hafði átt að hafa reynt að stinga af um nóttina, þá var hann steinstofandi inn í herbergi. Ég hringdi á mbl og þeir leiðréttu þetta en skaðinn var samt orðinn," segir Salmann. Bæði hrósa þau barnavernd í Sandgerði, sem annast mál Bilals. Þeim þykir þó óþægilegt að hafa enn ekki fengið bráðabirgðarkennitölu fyrir hann. Sárt sé að tengjast barni tilfinningalegum böndum en geta ekki verið viss um framhaldið. Bilal er samt viss um hvað hann vill.Langar þig að vera áfram? spyr fréttakona. „Ég vil aldrei fara. Ég ætla að vera hérna," segir hann.Ertu glaður? spyr fréttakona. „Já," segir Bilal.
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Fleiri fréttir Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Sjá meira