Gunnlaugur: Málið farið mjög illa í sum börn mín 5. september 2012 09:00 Gunnlaugur segir að málið hafi farið illa í börn sín. mynd/ gva. "
Málið hefur farið mjög illa í konuna mína, móður hennar líka og sum börn mín, þetta hefur farið mjög illa í sum börn mín," sagði Gunnlaugur M. Sigmundsson, sem hefur ásamt konu sinni stefnt Teiti Atlasyni fyrir meiðyrði vegna umfjöllunar hans á bloggsíðu sinni á dv.is, þegar hann bar vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Gunnlaugur fór yfir sögu Kögunar en umfjöllun Teits virðist hafa verið byggð að miklu leyti á grein í Morgunblaðinu frá árinu 1998 um örlög fyrirtækisins. Gunnlaugur sagði þá grein hafa verið ranga en þá var hann sjálfur þingmaður Framsóknarflokksins. Gunnlaugur segir málið hafa farið illa í fjölskyldu sína eins og fram hefur komið en eitt barna hans er Sigmundur Davíð, formaður Framsóknarflokksins. Fleiri vitni eiga eftir að lýsa aðkomum sínum að málinu, auk Teits sjálfs, en meðal þeirra er Jón Baldvin Hannibalsson sem var þá utanríkisráðherra. Gunnlaugur sagði meðal annars í framburði sínum, þegar hann fór yfir sögu Kögunar, að Jón Baldvin hafi sagt sér á sínum tíma að það væri afar mikilvægt að Kögun félli ekki í hendur fjölskyldnanna fjórtán, "án þess að hann hafi útskýrt það frekar," bætti Gunnlaugur svo við. Nánar verður fjallað um meiðyrðarmálið síðar í dag.
Mest lesið Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Innlent Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Innlent Gefa upp dánarorsökina vegna „ónákvæmra og rangra frétta“ af andlátinu Erlent Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi Innlent Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Innlent Testósterónmagn kannað hjá öllum hermönnum 30 ára og eldri Erlent Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Innlent Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Innlent Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Innlent Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Innlent Fleiri fréttir Kalla inn próteinpopp „Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Ráðherra með „fráleita hótun“ Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks Ógnvænleg hegðun daglegt brauð: „Það er orðin raunin í þessum bransa“ Formaður Brunavarna Árnessýslu: Málið litið mjög alvarlegum augum Einfaldur seðill flýtir ekki lokatölum Þúsundir Úkraínumanna mótmæla hrókeringum Selenskís Undirbúningur fyrir þjóðaratkvæði í fullum gangi og hækkun hámarkshraða rædd Klóraði lögreglumann og beit annan Ólafur ráðinn sveitarstjóri Skagastrandar Geri foreldra og börn að lögbrjótum Enginn framhaldsskólakennari meti stöðu nýnema mjög góða Mál Péturs slökkviliðsstjóra komið á borð lögreglu Almar nýr formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga Dró strætóbílstjóra úr sætinu og potaði í augu hans Kalla inn Voga ídýfu vegna vanmerkts ofnæmisvalds MAST hafi farið gegn áliti fagráðs um blóðmerahald Stefnir í fámennari Þjóðhátíð: „Við tökum þetta á langhlaupinu“ Lengja opnunartíma í Salalaug Ár liðið frá því síðast gaus á Reykjanesi Jafnvel brotist inn þegar fólk er heima Erfiðara og erfiðara að lifa mannsæmandi lífi á Íslandi „Þetta snýst ekki hreinlega um bann heldur ákveðna vernd“ Fór af hjólinu skömmu áður en það brann til kaldra kola á þjóðveginum Nánast farin að reikna með hitabylgjum fyrir austan Ekki öll jafn spennt fyrir boðuðu samfélagsmiðlabanni Hefur áhyggjur af smithættu í fargufum „Þetta setti allt úr skorðum fyrir okkur“ Lögreglan rannsakar enn eitt innbrotið í borginni Sjá meira