Arion banki hafnar tilboði frá Bakkavararbræðrum Magnús Halldórsson skrifar 25. júní 2012 15:48 Ágúst og Lýður Guðmundssynir, eru við stjórnvölinn hjá Bakkavör. Ágúst er forstjóri og Lýður stjórnarformaður.
Arion banki hefur hafnað tilboði frá Bakkavararbræðrunum Ágústi og Lýði Guðmundssonum, í hlut bankans í Bakkavör. Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 á föstudag hafa Bakkavararbræður að undanförnu nálgast hluthafa í Bakkavör og boðist til þess að kaupa af þeim hlutinn í félaginu. Lífeyrissjóðirnir Gildi og Lífeyrissjóður verzlunarmanna, sem eiga samtals ríflega 12 prósent hlut, hafa báðir gefið það út að þeir ætli ekki að selja bræðrunum hlutinn sinn heldur frekar freista þess að halda á hlutnum og vonast til þess að verðmæti hans aukist með tímanum. Bakkavör var árið 2010 stærsta fyrirtæki í íslenskri eigu, samkvæmt Frjálsri verslun, en starfsemi félagsins er í Bretlandi. Það framleiðir tilbúna matrétti fyrir verslanir. Velta félagsins í lok árs 2010, nam tæplega 300 milljörðum króna. Arion banki, sem á stærstan hlut í félaginu, eða 34 prósent, ræður miklu um hvort Bakkavararbræður ná yfirráðum yfir félaginu en hlutur þeirra er í tæplega 26 prósent, en hlutur annarra hluthafa er 74 prósent. Bakkavararbræður eignuðust sinn hlut í félaginu eftir endurskipulagningu með því að kaupa hann á fjóra milljarða króna, en hluti af þessum kaupum var tæplega 7 prósent hlur Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sem bræðurnir keyptu á ríflega einn milljarð. Tilboð bræðranna í hluti annarra hluthafa byggir á sama verðmati og kaup þeirra á fjórðungshlutnum tóku mið af. Miðað við það er virði Bakkavarar 16 milljarðar króna. Í fréttum Stöðvar 2 sl. föstudag var frá því greint að stjórnarmenn í lífeyrissjóðunum hefðu rætt það á stjórnarfundum, og spurt, hvaðan Bakkavararbræður fái peninga til þess að kaupa félagið. DV fjallar um þetta í dag, og setur arðgreiðslur til Bakkavararbræðra út úr fjárfestingafélaginu Exista, þar sem þeir voru stærstu hluthafar fyrir hrunið, í þetta samhengi. Í umfjöllun blaðsins kemur fram að Bakkavararbræður hafi fengið 8,7 milljarða króna í arð á árunum 2005 til 2007 vegna afkomu félagsins á undagengnu rekstrarári hvers árs. Efnahagsreikningur Exista, sem nú er í eigu kröfuhafa og starfar undir nafninu Klakki ehf., var í evrum á þessum tíma. Sé mið tekið af því hvernig gengi krónunnar gagnvart evru hefur þróast frá þeim tíma er arðgreiðslurnar áttu sér stað, þ.e. með gengisfallinu sem fylgdi hruni bankakerfisins, þá er upphæðin nærri 20 milljörðum króna að núvirði.Uppfært: 19:16. Arion banki hefur hafnað tilboði frá Bakkavararbræðrum, fréttin var uppfærð í samræmi við upplýsingar um það.
Tengdar fréttir Fréttaskýring: Bakkavararbræður gera milljarðatilboð í félagið Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa gert tilboð til allra hluthafa í Bakkavör Group og vilja eignast félagið sem þeir stofnuðu að fullu. Þeir hafa boðið verð sem er hærra en það sem var á nýlegri hlutafjáraukningu. Þar eignuðust bræðurnir 25 prósenta hlut fyrir um fjóra milljarða króna. Miðað við það er ljóst að bræðurnir hafa boðið á annan tug milljarða króna hið minnsta í hlut annarra í Bakkavör Group. 23. júní 2012 05:45 Kröfuhafar með stjórnartaumanna Á aðalfundi Bakkavarar Group sem haldinn var 23. maí síðastliðinn samþykktu kröfuhafar umtalsverðar breytingar á félaginu. Í þeirri breytingu fólst meðal annars að íslenskir kröfuhafar Bakkavarar Group, að mestu bankar og lífeyrissjóðir, breyttu kröfum sínum í hlutafé og eignuðust félagið að mestu. Samhliða fengu Ágúst og Lýður Guðmundssynir að kaupa um fjórðungshlut í því á um fjóra milljarða króna. 23. júní 2012 03:15 Bakkavararbræður vilja eignast Bakkavör Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa gert lífeyrissjóðum og bönkum tilboð í hlutabréf í Bakkavör með það fyrir augum að eignast félagið að fullu. Þeir hafa þegar keypt hluti í félaginu fyrir fjóra milljarða, meðal annars af Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Aðrir hluthafar reyna nú að halda yfirráðum í félaginu. 22. júní 2012 19:38 Mest lesið Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Viðskipti innlent Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Viðskipti innlent „Þetta er bara algjörlega galið“ Neytendur Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Viðskipti innlent Jólakjötið töluvert dýrara í ár Neytendur Fá dagsektir fyrir villandi verðskrá Neytendur Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Viðskipti innlent Skipta dekkin máli? Samstarf Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ 15 ára afmæli kynjakvóta: „Langt frá því að vera fyrirmyndarríkið sem við teljum okkur vera“ Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Sjá meira
Fréttaskýring: Bakkavararbræður gera milljarðatilboð í félagið Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa gert tilboð til allra hluthafa í Bakkavör Group og vilja eignast félagið sem þeir stofnuðu að fullu. Þeir hafa boðið verð sem er hærra en það sem var á nýlegri hlutafjáraukningu. Þar eignuðust bræðurnir 25 prósenta hlut fyrir um fjóra milljarða króna. Miðað við það er ljóst að bræðurnir hafa boðið á annan tug milljarða króna hið minnsta í hlut annarra í Bakkavör Group. 23. júní 2012 05:45
Kröfuhafar með stjórnartaumanna Á aðalfundi Bakkavarar Group sem haldinn var 23. maí síðastliðinn samþykktu kröfuhafar umtalsverðar breytingar á félaginu. Í þeirri breytingu fólst meðal annars að íslenskir kröfuhafar Bakkavarar Group, að mestu bankar og lífeyrissjóðir, breyttu kröfum sínum í hlutafé og eignuðust félagið að mestu. Samhliða fengu Ágúst og Lýður Guðmundssynir að kaupa um fjórðungshlut í því á um fjóra milljarða króna. 23. júní 2012 03:15
Bakkavararbræður vilja eignast Bakkavör Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa gert lífeyrissjóðum og bönkum tilboð í hlutabréf í Bakkavör með það fyrir augum að eignast félagið að fullu. Þeir hafa þegar keypt hluti í félaginu fyrir fjóra milljarða, meðal annars af Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Aðrir hluthafar reyna nú að halda yfirráðum í félaginu. 22. júní 2012 19:38