„Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Agnar Már Másson skrifar 17. júlí 2026 20:01 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Sýn/Arnar Forstjóri Icelandair segir það góðar fréttir að tímabundin sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Evrópusambandsins hafi verið framlengd til ársins 2030. Hann vonast aftur á móti eftir því að varanleg lausn finnist og vill kallar eftir því að alþjóðlegu losunarheimildakerfi verði komið á fót.
Utanríkisráðuneytið tilkynnti í morgun að íslensk stjórnvöld og framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefðu skrifað undir viljayfirlýsingu um að framlengja sérlausn Íslands er varðar losunarheimildir til ársins 2030, en það eru þau gjöld sem fyrirtæki greiða fyrir hvert tonn af koltvísýringi sem þau hyggjast leysa út í andrúmsloftið. Sömuleiðis birti framkvæmdastjórn ESB tillögur sínar um endurskoðun ETS-kerfisins, sem eiga að gefa iðnaðargreinum og annarri starfsemi rýmri tíma til að minnka útblástur á næstu árum. Íslenska sérlausnin hefur verið í gildi frá 2023 og gengur út á það að í stað þess að íslensk flugfélög bjóði í loftslagsheimildir á uppboði – eins og flugfélög annars staðar – fá íslensk stjórnvöld að úthluta heimildum ókeypis til flugfélaga. Á síðustu árum hafa loftslagsgjöldin reynst mikill kostnaður fyrir íslenska flugfélagið Icelandair, sem hefur á síðustu fjórum árum greitt tæplega 14 milljarða króna í losunar- og kolefniskostnað. Icelandair hefur að mestu skilað tapi síðustu átta ár. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, vonast eftir því að varanleg lausn finnist í losunarheimildum sem taki mið af sérstöðu Íslands á flugmarkaði, frekar en bara tímabundin lausn. „Við erum bara að hefja rýni á þessu og munum gera það áfram í næstu viku og meta áhrifin á okkur og samkeppnishæfni Íslands, en jákvætt að sérlausnin verði framlengd en við og stjórnvöld hér höfum á hinn bóginn talað fyrir því að það sé nauðsynlegt að fá varanlega lausn,“ segir Bogi í samtali við fréttastofu. Bogi segir að framlengingin á tímabundnu lausninni hafi í raun lítil áhrif á rekstrarhorfur félagsins enda sé um óbreytt ástand að ræða þó að það eyði vissulega óvissu. Hann vonast eftir því að alþjóðlegu losunarheimildakerfi verði komið á fót. „Evrópusambandið er að vinna með staðbundna lausn á alþjóðavandamáli og það hefur neikvæð áhrif á samkeppnishæfni evrópskra flugfélaga,“ segir hann. „Fluggeirinn hefur talað fyrir því að Evrópusambandið og heimurinn allur vinni að því að innleiða alþjóðlegt kerfi því að flugrekstur er alþjóðlegur og flug getur auðveldlega færst til á milli svæða eða álfa þar sem kostnaður er lægri.“ Bogi bendir á að losunarheimildir séu heldur ekki eina ástæðan fyrir erfiðri stöðu flugfélagsins. „Launahækkanir og verðbólga hafa verið mun hærri hér en í samkeppnislöndunum,“ segir hann. Þegar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var spurð að því á Vísi í dag hvers vegna varanleg lausn hefði ekki fengist, benti hún á að Ísland væri ekki í Evrópusambandinu og hefði því lítið um málið að segja en að þetta mál yrði eitt af helstu baráttumálum við samningaborðið ef Íslendingar gengju í aðildarviðræður við Evrópusambandið. Heldur þú að Icelandair væri betur borgið ef Ísland væri í Evrópusambandinu? „Ég sé það ekki breyta neinu stóru. Við höfum í hreinskilni sagt ekki rætt þetta, hvorki í framkvæmdastjórn né stjórn.“
Icelandair Flug Evrópusambandið Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Loftslagsmál Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Kalla inn pylsur vegna prentvillu Neytendur Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Fleiri fréttir Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Kaupendur yfirleitt með raunhæft mat og vel undirbúnir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Sjá meira