Lýsing mátti reikna vexti miðað við erlenda gjaldmiðla Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. nóvember 2012 11:12
Héraðsdómur Reykjavíkur komst í morgun að þeirri niðurstöðu að samningur sem fyrirtækið Eirvík-Heimilistæki ehf. gerði í byrjun árs 2008 um fjármögnun á VW Caddy bíl væri í raun leigusamningur. Því hefði Lýsingu verið heimilt að binda vexti af þessum samningi við gengi erlendra gjaldmiðla. Ákvæði vaxtalaga um að óheimilt væri að reikna vexti út frá gengi erlendra gjaldmiðla ætti því ekki við í tilfelli þessa lánasamnings. Eins og kunnugt er hafa fjölmargir lánasamningar verið dæmdir ógildir á forsendum vaxtalaga frá árinu 2001, en Lýsing hefur hingað til haldið að þeir dómar væru ekki fordæmisgefandi fyrir þau lán sem fyrirtækið hefði veitt. Héraðsdómur segir að af ákvæðum samningsins, sem þykja að öðru leyti skýr að mati dómsins, megi ráða að samið hafi verið um leigu stefnanda á bifreiðinni á ákveðnu tímabili gegn greiðslu mánaðarlegs gjalds. Í samningnum sé hvorki tiltekið kaupverð bifreiðarinnar né höfuðstóll samningsins en eðli málsins samkvæmt væri nauðsynlegt að þessi atriði kæmu fram ef um lánssamning væri að ræða. Héraðsdómur segir jafnframt að í skilmálum samningsins komi hvergi fram að leigutaki eignist bifreiðina við lok samningstímans. Segir þvert á móti að leigumun skuli skilað að leigutíma loknum og liggur fyrir í gögnum málsins að bifreiðinni hafi verið skilað til stefnda, 3 mars 2011, sem síðan seldi hana áfram til þriðja aðila. Ofangreint bendi meðal annars til þess að samningurinn sé leigusamningur en ekki lánssamningur.
Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Sjá meira