Innlent

Eldur blossaði upp að nýju

Slökkviliðsmenn skoða aðstæður í dag.
Slökkviliðsmenn skoða aðstæður í dag. Mynd/ JMG
Eldur blossaði upp aftur í húsnæðinu á Óseyrarbraut þegar lögregla var að rannsaka brunavettvang eftir hádegi í dag. Eldurinn hafði læst sig í klæðningu á þaki hússins og hafa glóð líklegast kraumað þar fram eftir öllum morgni. Þegar lögreglumenn við störf urðu varir við eldinn núna eftir hádegi kölluðu þeir strax til slökkvilið sem fór af vettvangi núna um þrjúleytið. Eldurinn blossaði fyrst upp um klukkan eitt í nótt og urðu töluverðar skemmdir, eins og sjá má á meðfylgjandi myndskeiði.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×