Játar hrottalega líkamsárás í Herjólfsdal Hugrún Halldórsdóttir skrifar 4. ágúst 2012 18:30
Þekktur ofbeldismaður hefur játað að hafa ráðist á mann á Þjóðhátíð í nótt og sýna upptökur úr eftirlitsmyndavél hve hrottaleg líkamsárásin var. Ein nauðgun hefur verið kærð á hátíðinni og fjöldi fíkniefnamála komið inn á borð lögreglu. Maðurinn sem varð fyrir árásinni var í fyrstu talinn höfuðkúpubrotinn og þótti ráð að flytja hann á sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum. „Hann er ekki brotinn samkvæmt okkar upplýsingum eins og talið var en hann er illa marinn og ekki alveg ljóst hvort að það hafi verið eitthvað innvortis, heilamar eða slíkt. Það er ekki komið í ljós. Hann er allavega laus af sjúkrahúsinu og það reyndist ekki þörf á að flytja hann til Reykjavíkur til frekari læknismeðferðar," segir Jóhannes Ólafsson, yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum. Árásarmaðurinn sem er undir tvítugu er þekktur ofbeldismaður að sögn lögreglu og var hann handtekinn í kjölfar árásarinnar og vistaður í fangageymslu. Þrátt fyrir að árásin hafi verið hrottaleg er hún þó ekki þess eðlis að krafist verði gæsluvarðhalds yfir manninum að sögn lögreglu. „Hann er reyndar hér enn í haldi. Það er búið að taka af honum skýrslu og hann viðurkennir að hafa slegið hann," segir hann. Ellefu eftirlitsmyndavélum var komið fyrir á hátíðarsvæðinu rétt fyrir helgi og náði ein þeirra myndum af árásinni. „Þetta átti sér stað á brúnni sem er yfir tjörnina þannig að þetta nær vel yfir, þetta er aðeins úr smá fjarska en þetta sést samt alveg greinilega," segir hann. „Það sannaðist að þetta er góð viðbót við annað sem þarna er í Dalnum, gæslu og annað. Þannig að við getum nýtt okkur þetta í þágu rannsóknar."
Mest lesið Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Innlent Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Innlent Segir Bill og aðra þurfa að svara fyrir tengsl sín við Epstein Erlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Lögregla hefur rannsókn á samskiptum Mandelson og Epstein Erlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Vilja óháða sérfræðinefnd til að rannsaka alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Sjá meira