Innlent

Bjóða upp á nettengingu í háloftunum

Nú er hægt að fara á netið í háloftunum sé flogið með Norwegian.
Nú er hægt að fara á netið í háloftunum sé flogið með Norwegian.
Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið nettengdir á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi samkvæmt vefsíðunni túristi.

Það tekur tvo og hálfan tíma að fljúga frá Keflavík til höfuðborgar Noregs og geta Íslendingar tengst netinu sér að kostnaðarlausu yfir miðju Atlantshafinu fljúgi þeir með Norwegian, enda nær allur flugfloti félagsins útbúinn þráðlausu netkerfi og kostar þjónustan ekki krónu.

Í samtali við Túrista segist Boris Bubresko, yfirmaður viðskiptaþróunar félagsins, gera ráð fyrir að það verði netsamband alla leiðinni frá Íslandi til Noregs. Hann bendir þó á að Ísland sé við ystu mörk svæðisins sem net Norwegian nái til. Því verði ekki hægt að segja til með vissu um það hvernig sambandið verður yfir Íslandi fyrr en fyrsta nettengda þotan hefur flogið til landsins.

Eins og áður segir eru ekki allar vélar Norwegian með þráðlausu neti og því ekki víst að þeir sem fljúga með félaginu á milli Noregs og Íslands geti hringt í gegnum Skype, farið á Facebook eða lesið sér til um Osló á netinu í háloftunum.

Farþegar bandaríska flugfélagsins Delta á leið til New York ættu einnig að komast á netið en þó aðeins þegar flogið er yfir Bandaríkjunum. Kostar aðgangurinn 12 dollara sem jafngildir rúmum 1500 krónum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×