Bjóða upp á nettengingu í háloftunum 25. maí 2012 10:28 Nú er hægt að fara á netið í háloftunum sé flogið með Norwegian.
Þeir sem fljúga með flugfélaginu Norwegian frá Keflavík til Osló í sumar geta verið nettengdir á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi samkvæmt vefsíðunni túristi. Það tekur tvo og hálfan tíma að fljúga frá Keflavík til höfuðborgar Noregs og geta Íslendingar tengst netinu sér að kostnaðarlausu yfir miðju Atlantshafinu fljúgi þeir með Norwegian, enda nær allur flugfloti félagsins útbúinn þráðlausu netkerfi og kostar þjónustan ekki krónu. Í samtali við Túrista segist Boris Bubresko, yfirmaður viðskiptaþróunar félagsins, gera ráð fyrir að það verði netsamband alla leiðinni frá Íslandi til Noregs. Hann bendir þó á að Ísland sé við ystu mörk svæðisins sem net Norwegian nái til. Því verði ekki hægt að segja til með vissu um það hvernig sambandið verður yfir Íslandi fyrr en fyrsta nettengda þotan hefur flogið til landsins. Eins og áður segir eru ekki allar vélar Norwegian með þráðlausu neti og því ekki víst að þeir sem fljúga með félaginu á milli Noregs og Íslands geti hringt í gegnum Skype, farið á Facebook eða lesið sér til um Osló á netinu í háloftunum. Farþegar bandaríska flugfélagsins Delta á leið til New York ættu einnig að komast á netið en þó aðeins þegar flogið er yfir Bandaríkjunum. Kostar aðgangurinn 12 dollara sem jafngildir rúmum 1500 krónum.
Mest lesið Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Þeir munu hengja mig“ Erlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Innlent Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Innlent Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Innlent „Ríkið á stóra sök á þessu“ Innlent Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Ekki sé lýðræðislegt að halda formanni Eflingar í myrkrinu Bandaríkin virði fullvalda ákvörðun þjóðarinnar Kveiktu bál á bílastæði Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Sjá meira