Innlent

Ný tækni eykur lyfjaöryggi

MedEye nýtir tölvusjón og háþróaða greiningartækni og vinnur með hjúkrunarfræðingunum.
MedEye nýtir tölvusjón og háþróaða greiningartækni og vinnur með hjúkrunarfræðingunum.
Íslenskt fyrirtæki hefur þróað lyfjaskanna sem ber kennsl á lyf. Getur komið í veg fyrir nær öll mistök við skömmtun, pökkun og lyfjagjöf. Mikill áhugi er á skannanum erlendis. Framleiðslan verður á Íslandi.

Íslenskt hátæknifyrirtæki, Mint Solutions, hefur þróað lyfjaskanna sem gjörbyltir öryggismálum vegna lyfjagjafar á sjúkrahúsum. Skönnun lyfjanna fer fram á stofu sjúklingsins rétt áður en honum eru gefin lyfin. Hjúkrunarfræðingar geta því komið í veg fyrir nær öll þau mistök sem orðið geta við skömmtun, pökkun og lyfjagjöf, að því er Gauti Þór Reynisson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins og einn stofnenda þess, greinir frá.

„Þetta er í raun tæki sem vinnur með hjúkrunarfræðingunum. Það ber kennsl á lyf og hjálpar þannig til við að greiða úr þeim flækjum sem upp geta komið.“

Að sögn Gauta hefur í raun ekki verið til nein handhæg lausn við vandamálum sem geta komið upp við lyfjagjöf. „Í niðurstöðum rannsóknar sem birtar voru fyrir um mánuði í Hollandi er greint frá því að árlega deyja 1.200 manns þar í landi vegna lyfjamistaka. Þetta er alþekkt vandamál í heilbrigðisgeiranum en erfitt hefur verið að vinna bug á því hingað til.“

Gauti getur þess að helsti valkosturinn fram að þessu hafi verið kostnaðarsöm og flókin strikamerkjakerfi. „Sjúkrahúsin auka ekki bara öryggið, heldur spara þau sér mikla vinnu og fjármagn með því að nota lyfjaskannann.“

Lyfjaskanninn, sem nefndur er MedEye, nýtir tölvusjón og háþróaða greiningartækni. Hann hefur verið prófaður á þremur sjúkrahúsum í Hollandi undanfarna mánuði. Stjórnendur þeirra hafa nú ákveðið að kaupa slíka skanna og gert er ráð fyrir að tækin verði komin í fulla notkun þar fyrir jól, að því er Gauti greinir frá.

Nýlega var gerður samningur við norskt hugbúnaðarfyrirtæki um dreifingu á tækninni í Noregi, sem gerir rúmlega 70 prósentum allra norskra sjúkrahúsa kleift að nýta sér lausnina.

Mint Solutions á í viðræðum við hugbúnaðarframleiðendur sem þjónusta nær 75 prósent af hollenska markaðnum, um helming sjúkrahúsa í Finnlandi og rúmlega 40 prósent allra sjúkrahúsa í Danmörku. Viðræður við íslensk sjúkrahús um kaup á lyfjaskannanum eru að hefjast.

Öll þróunarvinna fer fram á Íslandi en fyrstu tækin voru framleidd í Hollandi. „Við höfum hins vegar samstarfsaðila á Íslandi þegar kemur að stærri pöntunum,“ tekur Gauti fram.- ibs




Fleiri fréttir

Sjá meira


×