Eigandi Monte Carlo ætlar að stefna borginni og lögreglunni Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. júní 2012 17:00 Monte Carlo á Laugarvegi.
Margeir Margeirsson, eigandi veitingastaðanna Mónako og Monte Carlo á Laugavegi, ætlar að höfða skaðabótamál gegn lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavík vegna þeirrar ákvörðunar að synja stöðunum um veitingaleyfi. Ákvörðunin var tekin á grundvelli neikvæðrar umsagnar borgarráðs, en innanríkisráðuneytið hefur úrskurðað að með umsögninni hafi borgarráð farið út fyrir umsagnarsvið sitt og með því brotið gegn stjórnsýslulögum. Margeir segist í fréttastofu hafa varið um 10 milljónum króna í lögfræðikostnað vegna málsins. Borgarráð bókaði á fimmtudaginn að ráðið telur mikilvægt að lög um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald verði tekin til endurskoðunar á þann hátt að heimildir sveitarfélagsins til að byggja umsagnir sínar á ofangreindum þáttum verði tryggðar. Jónas Örn Jónasson, lögmaður Margeirs, segir aftur á móti að löggjöf í dag sé fullnægjandi varðandi sviðið, þótt framkvæmd sé ábótavant hjá Lögreglu og Reykjavíkurborg. Jónas segir að Reykjavíkurborg hafi gefið neikvæða umsögn í málinu, á grundvelli kvartana sem hafi verið algjörlega órökstuddar og ennfremur „skýrslum" lögreglustjóra þar sem skráð eru mál sem ekkert tengjast veitingastöðunum. Þrátt fyrir að fyrirliggjandi væri að þau mál sem voru skráð í skýrslu lögreglu hefðu ekkert með staðina að gera eða rekstraraðila þess, hafi borgin ákveðið að byggja neikvæða umsögn sína á því. Þá segist Jónas ítrekað hafa komið athugasemdum á framfæri við Lögreglustjórann á höfuðborgarsvæðinu, embættið og lögreglustjórann sjálfan, með fjölda bréfa og símleiðis, án þess að brugðist væri við. Einnig hafi á sama hátt verið komið á framfæri athugasemdum við Reykjavíkurborg, Borgarlögmann, lögfræðideild, skrifstofustjóra og borgarráðsfulltrúa, en þeir hafi ekki sinnt því.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Bíl ekið á ljósastaur Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Sjá meira