Skrautlegur aðall í gala-kvöldverði 25. október 2011 09:00 Fjöldi gesta lét það eftir sér að dansa við ljúfan undirleik á gala-kvöldverðinum í þessum stórbrotna danssal Hilton-hótelsins.
Norræni aðallinn klæddist sínu fínasta pússi þegar hann var viðstaddur glæsilegan gala-kvöldverð á vegum American-Scandinavian Foundation en samtökin verða hundrað ára í ár. Íslensku forsetahjónin voru að sjálfsögðu á meðal gesta. Allir þjóðhöfðingjar Norðurlandanna voru samankomnir á Hilton-hótelinu þegar samtökin American-Scandinavian Foundation héldu veglegan galakvöldverð um helgina. Aðalsborið fólk og forsetar Finnlands og Íslands voru heiðursgestir samkomunnar en fólkið var hyllt með dynjandi lófaklappi þegar það gekk í salinn. Norska leikkonan Liv Ullmann var veislustjóri og leikarinn Brian Stokes Mitchell skemmti fólki með söng. Síðan var stiginn dans og þar vöktu Friðrik krónprins og Mary Donaldson mesta athyglina fyrir mikinn þokka á dansgólfinu. Ekki voru þó allir hrifnir af kvöldverðinum og blaðamaður Wall Street Journal, Mike Vilensky, segir viðburðinn hafa haft ásjónu gömlu yfirstéttarinnar. „Fræga fólkið og almúginn eru oft aðskilin í gala-kvöldverðum en það gerist ekki oft að fólk fái skriflegar leiðbeiningar um hvernig það eigi að haga sér í nærveru slíks fólks,“ skrifar Vilensky og vitnar í leiðbeiningar sem allir gestir fengu en þar kom meðal annars fram að ekki mætti snerta hið aðalsborna fólk nema bara með einu handabandi. „Þetta er svolítið fornt,“ hefur Wilensky eftir lögfræðingnum C.P. Braestrup sem bætti því svo við að konungsfólkið yrði að viðhalda ákveðinni dulúð. Blaðamaður vefsíðunnar Examiner fylgdist gaumgæfilega með hverju skrefi konungsfólksins og sá hvernig Sonja Noregsdrottning festi kjólinn sinn í rúllustiga en var bjargað af sjálfum Karli Gústav Svíakonungi. Adam var hins vegar ekki lengi í paradís hjá hinum skrautlega konungi því honum tókst að hella kampavíni á kjól konu sinnar. freyrgigja@frettabladid.is
Lífið Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira