Stefnumót sett í uppnám 28. september 2011 09:00 Innihaldið mikilvægt Sigríður Sigurjónsdóttir biður ræningja um að koma innihaldi tölvunnar hennar til skila því það sé henni ákaflega mikilvægt. „
Þetta er tölva með ónýtu batteríi og lélegum skjá en það sem er á henni er mér hrikalega mikilvægt,“ segir Sigríður Sigurjónsdóttir, prófessor við Listaháskóla Íslands, en Mac Pro-fartölvu hennar var stolið úr bíl við Smáragötu á laugardagsmorgun. Sigríður segist kannski ekki sjá mikið eftir tölvunni sjálfri en á henni var að finna allar upplýsingar um nýja bók og heimasíðu sem var í undirbúningi í tengslum við verkefnið Stefnumót bænda og hönnuða. Það verkefni tefst nú sökum þjófnaðarins. „Við byrjuðum á þessu verkefni fyrir fjórum árum þegar við tefldum saman ungum vöruhönnuðum og bændum og reyndum að finna nýja sýn á íslenskar afurðir og hvernig mætti tefla þeim fram á nýstárlegan hátt,“ útskýrir Sigríður og því ljóst að missirinn er mikill. „Þetta kennir manni auðvitað að maður á að vera duglegri að taka „back-up“ af öllum skjölum.“ Verkefnið hefur vakið mikla athygli en meðal þess sem hefur komið út úr því eru rabarbarakaramella og skyrkonfekt. Sigríður segir að meðal næstu verkefna verði samstarf hópsins við Þórbergssafnið á Hala í Suðursveit en þá geta gestir safnsins kynnst skáldinu í gegnum eftirlætismatinn hans.- fgg
Lífið Mest lesið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Sjá meira