Banderas snýr aftur til Almodóvars 25. ágúst 2011 23:00 Kominn heim Antonio Banderas er kominn aftur heim og leikur að nýju undir stjórn Pedros Almodóvar í kvikmyndinni La piel que habito.
asdf Eftir mögur ár í Hollywood hefur Antonio Banderas snúið aftur í arma spænska leikstjórans Pedros Almodóvar því kvikmyndin La piel que habito er fyrsta kvikmynd þeirra tveggja í 21 ár. Myndin var frumsýnd í Cannes fyrr á þessu ári og fékk afbragðsgóða dóma. Almodóvar reynir sig við vísindaskáldskap í fyrsta sinn en höfuðeinkenni hans eru aldrei langt undan. Myndin er byggð á skáldsögunni Tarantula eftir Thierry Jonquet og segir frá lýtalækninum Robert Ledgard sem segist hafa fundið upp fullkomið skinn. Hann tekur jafnframt fram að hann hafi eingöngu prófað skinnið á tilraunamúsum en það er ekki alveg sannleikanum samkvæmt. Banderas hefur ekki átt sjö dagana sæla á hvíta tjaldinu í Hollywood og hefur helst alið manninn í arfaslökum B-myndum. Það er því ekkert skrýtið að hann skuli leita aftur á náðir Almodóvars en spænski kvikmyndarisinn á einna helst heiðurinn af glæstum ferli Banderas. Hann gaf leikaranum sitt fyrsta tækifæri í Laberinto de pasiones sem frumsýnd var 1982 og tveimur árum seinna var Banderas á allra vörum fyrir frammistöðu sína í La ley del deseo. Það var svo með kvikmyndunum Konur á barmi taugaáfalls og Bittu mig, elskaðu mig, báðar eftir Almodóvar, að Banderas fór vestur um haf til Hollywood.
Lífið Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira