Ríkið rann í gegn Ólafur Jónsson skrifar 19. ágúst 2011 06:00 Þannig hljóðaði fyrirsögn við frétt í Vikudegi þegar þar var greint frá niðurstöðu atkvæðagreiðslu í bæjarstjórn Akureyrar 21. júní sl. varðandi breytingu á deiliskipulagi við Hólabraut og Laxagötu til þess að auðvelda Ríkinu (ÁTVR) að stækka við verslun sína á Akureyri, þá einu í bænum. Rétt er að tillagan var samþykkt í bæjarstjórn, en einungis af 6 fulltrúum L-listans, en fjórir bæjarfulltrúar minnihlutans, þar á meðal ég fulltrúi D-lista, greiddu atkvæði gegn tillögunni og fimmti minnihlutafulltrúinn sat hjá. Þessi fyrirsögn rifjaðist upp fyrir mér þegar ég las opnuviðtal við Odd Helga Halldórsson, formann bæjarráðs og föður L-listans, í sama blaði nú á dögunum. Nú skal áfram haldið boðar Oddur Helgi. Mál sem hafa vafist fyrir fyrri meirihlutum verða nú afgreidd á færibandi enda hefur hann vissu fyrir því að fyrir þeim er mikill meirihluti í bænum, í sumum tilvikum segir hann 9 af hverjum 10 bæjarbúum hlynnta viðkomandi máli. Engu skiptir að þetta eru mál sem hafa mikil áhrif á lítinn fjölda íbúa. Lítil íbúðarbyggð við Hólabraut og Laxagötu mátti sín lítils þegar meirihluti bæjarstjórnar gætti í engu að hagsmunum þeirra og veitti Ríkinu færi á að stækka eina af þriðju veltumestu afgreiðslum sínum án þess að í nokkru væri komið til móts við íbúana. Einokunaraðili fékk sitt fram undir því yfirskyni að hann væri að auka þjónustuna við fjöldann. Annað skipulagsmál hefur lengi verið deilumál í bænum en það er lagning Dalsbrautar frá Miðhúsabraut að Þingvallastræti eða liðlega 1.000 m langur kafli. Eftir tilkomu Miðhúsabrautar segir nýleg verkfræðiúttekt að ekki sé þörf á lagningu þessa spotta til þess að leysa úr umferðarþunga í næstu framtíð, en hins vegar bæti gatan umferðarskipulag og skapi heildstæðara reitakerfi í gatnakerfi bæjarins. Ég hef því þráfaldlega lagt til og kallað eftir því að gatan verði lögð sem 30 km gata, enda fer hún framhjá skóla og íþróttahúsi og tekur við umferð úr nýju hverfi þar sem allar götur eru með 30 km hámarkshraða. Þannig er umferðarhraða líka háttað í öðrum hverfum bæjarins. Þetta er grunnur að sátt í erfiðu máli. Á þessa sátt getur meirihlutinn ekki sæst, enda til hvers segir Oddur Helgi þegar 9 af hverjum 10 bæjarbúum eru samþykkir lagningu götunnar og Miðhúsabraut virkar ekki að hans mati hvað svo sem öllum verkfræðiúttektum líður? En stóru úrlausnarmálin bíða, enda ekki vitað hvar meirihluti íbúanna liggur í þeim efnum. Síkið er enn inni á skipulagi og meirihlutinn lét ógert að taka aðalskipulagið til endurskoðunar. Miðbæjarskipulagið bíður og allt það sem þar var lofað af hálfu L-listans. Kostar of mikið að skoða er viðbáran. Síðan er stokkurinn góði sem átti að leysa öll mál varðandi Dalsbrautina, lausnin sem hinir flokkarnir sáu ekki, gleymdur og tröllum gefinn. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Við erum 40 árum á eftir Einar Sverrisson Skoðun Þeir vökulu og tungumálið sem stjórntæki Jóhanna Jakobsdóttir Skoðun Þá verður gott að búa á Íslandi Bjarni Karlsson,Jóna Hrönn Bolladóttir Skoðun Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við samfélagið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir Skoðun Faglegt mat eða lukka? IV. Faglegt mat og ósvaraðar spurningar Bogi Ragnarsson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Þingmaður til sölu – bátur fylgir með Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Mamma er gulur góð einkunn? Díana Dögg Víglundsdóttir Skoðun „Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun Evrópumet! Háskólamenntun minnst metin á Íslandi Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Skoðun Skoðun Faglegt mat eða lukka? IV. Faglegt mat og ósvaraðar spurningar Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Skipulögð glæpastarfsemi er ógn við samfélagið Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Við erum 40 árum á eftir Einar Sverrisson skrifar Skoðun Þétting á 27. brautinni Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Þá verður gott að búa á Íslandi Bjarni Karlsson,Jóna Hrönn Bolladóttir skrifar Skoðun Faglegt mat eða lukka? III: Tækifæri fyrir löggjafann Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þingmaður til sölu – bátur fylgir með Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þeir vökulu og tungumálið sem stjórntæki Jóhanna Jakobsdóttir skrifar Skoðun Umburðarlyndi og kærleikur Snorri Ásmundsson skrifar Skoðun Kolbrún og Kafka Pétur Orri Pétursson skrifar Skoðun Brottvísanir sem öllum var sama um Finnur Thorlacius Eiríksson skrifar Skoðun Mamma er gulur góð einkunn? Díana Dögg Víglundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreind í vinnunni: Frá hamri til heilabús Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Fagmennska, fræðileg þekking, samráð, samvinna, þarfir og vilji barna og ungmenna eru grundvallaratriði Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Engu slaufað Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Faglegt mat eða lukka? II. Viðurkenning og höfnun Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Krabbameinsfélagið í stafni í aðdraganda storms Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Lénsherratímabilið er hafið Einar G Harðarson skrifar Skoðun Þéttur eða þríklofinn Sjálfstæðisflokkur Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Bras og brall við gerð Brákarborgar Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Getur uppbyggilegur fréttaflutningur aukið velsæld í íslensku samfélagi? Ása Fríða Kjartansdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar Skoðun Ósk um sérbýli, garð og rólegt umhverfi dregur fólk frá höfuðborgarsvæðinu Margrét Þóra Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Auðlindarentan heim í hérað Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Héraðsvötn og Kjalölduveitu í nýtingarflokk Jens Garðar Helgason,Ólafur Adolfsson skrifar Skoðun Eru borgir barnvænar? Þétting byggðar og staða barna í skipulagi Lára Ingimundardóttir skrifar Skoðun Hvað kosta mannréttindi? Anna Lára Steindal skrifar Skoðun Faglegt mat eða lukka? I: Frá kennslustofu til stafbókar Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna ekki bókun 35? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun 1 stk. ísl. ríkisborgararéttur - kr. 1,600 Róbert Björnsson skrifar Sjá meira
Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun
Skoðun Fagmennska, fræðileg þekking, samráð, samvinna, þarfir og vilji barna og ungmenna eru grundvallaratriði Árni Guðmundsson skrifar
Skoðun Getur uppbyggilegur fréttaflutningur aukið velsæld í íslensku samfélagi? Ása Fríða Kjartansdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun „Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir skrifar
Skoðun Ósk um sérbýli, garð og rólegt umhverfi dregur fólk frá höfuðborgarsvæðinu Margrét Þóra Sæmundsdóttir skrifar
Skoðun Eru borgir barnvænar? Þétting byggðar og staða barna í skipulagi Lára Ingimundardóttir skrifar
„Elska skaltu náunga þinn“ – gegn rasisma, hatri og sögufölsunum öfga hægrisins Guðrún Ósk Þórudóttir Skoðun