Evrópulöndin vilja halda forstjórastólnum 19. maí 2011 07:00 Allt stefnir í harða keppni um forstjórastól AGS þegar Dominique Strauss-Kahn hverfur úr embætti.
Evrópulöndin innan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) róa nú að því öllum árum að halda yfirráðum sínum yfir forstjórastól sjóðsins. Núverandi forstjóri, Dominique Strauss-Kahn, er í gæsluvarðhaldi vegna gruns um að hann hafi beitt starfsstúlku á hóteli í New York kynferðislegu ofbeldi og efast er um að hann eigi afturkvæmt í embættið. Óformlegt samkomulag hefur gilt um árabil þar sem Evrópa hefur átt stól forstjóra AGS vísan á meðan Bandaríkjamenn hafa setið að forstjórastóli Alþjóðabankans. Nú hafa hins vegar heyrst háværar raddir frá þeim ríkjum þar sem hagvöxtur hefur verið hvað öflugastur undanfarið um að breyting verði á. Þar hafa talsmenn Brasilíu og Suður-Afríku talað fyrir því að næsti forstjóri komi frá einhverju þróunarlandanna. Það er þó talið háð því að lönd utan Evrópu komi sér saman um einn umsækjanda. Meðal þeirra sem líklegri þykja til að hreppa hnossið er Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, en Gordon Brown, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, hefur einnig borið víurnar í stöðuna. Hann hefur þó ekki stuðning bresku stjórnarinnar, sem hefur ekkert gefið út um afstöðu sína. Bretar útiloka ekki að styðja umsækjanda frá þróunarlandi en David Cameron forsætisráðherra segist með ánægju munu styðja sterkan umsækjanda frá Evrópu. John Lipsky, næstráðandi Strauss-Kahn, gegnir stöðu forstjóra AGS um stundarsakir, en hyggst ekki gefa kost á sér til starfans.-þj
Mest lesið Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Erlent „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Innlent Fleiri fréttir Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Sjá meira