Dansandi draumabirnir kvikmyndaðir á Íslandi 4. maí 2011 20:00 Von er á um fjörutíu samkynhneigðum björnum til landsins í september á uppákomuna Bears on Ice.
Uppákoman Bears on Ice sem haldin verður 8. til 11. september næstkomandi er stíluð inn á svokallaða birni eða „bears“. Það er heiti á samkynhneigðum körlum sem eltast ekki við staðalímynd hommans og eru oftar en ekki þybbnir, sköllóttir og með skegg. Sumsé sannir karlmenn. „Von er á mönnum frá löndum á borð við Bretland, Þýskaland, Kanada, Frakkland og Bandaríkin, líklega í kringum fjörutíu til fimmtíu talsins,“ segir Ísar Logi Arnarsson, sem er einn þeirra sem standa að uppákomunni. Þetta verður í sjöunda sinn sem Bears on Ice er haldin en í þetta sinn munu áhugaverðir gestir fylgja hópnum. „Breskur sjónvarpsframleiðandi og leikstjóri, Jonathan Robinson, mun mynda viðburðinn en hann hefur myndað samkomur hinna svokölluðu bjarna um allan heim, en kemur nú til Íslands í fyrsta sinn,“ segir Ísar en með Robinson kemur all sérstæður skemmtiflokkur. „Hann kallast The Dreambears og er skipaður þremur þéttum og bangsalegum mönnum sem syngja og dansa og munu skemmta hópnum hér á landi,“ segir Ísar glaðlega en sjálfur mun hann þeyta skífum í partíum sem haldin verða fyrir hópinn sem kemur hingað til lands. Þó að skemmtanalífið sé vissulega aðdráttarafl munu mennirnir þó einnig upplifa náttúru landsins. „Þeir fara í Bláa lónið, gullna hringinn og jafnvel í hvalaskoðun,“ upplýsir Ísar og segir fyrri hópa ávallt hafa skemmt sér vel. Sambærilegar uppákomur eru haldnar víða um lönd og eru oft mjög umfangsmiklar. „Til dæmis er haldin risastór hátíð í Barcelona á hverju ári og þá fyllist borgin af hamingjusömum böngsum,“ segir Ísar. Hér á landi hefur hátíðin hins vegar verið smá í sniðum. „Það hefur verið stefnan að halda þessu smáu enda kynnast menn mun betur þannig,“ segir hann.Ísar bendir á vefsíðuna www.gayice.is fyrir þá sem vilja kynna sér þennan viðburð nánar. solveig@frettabladid.is
Mest lesið Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Lífið Bríet sviptir hulunni af kærastanum Lífið Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Lífið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ Tónlist Fyrsta lesbían til að prýða Playboy Lífið Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Lífið „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Lífið Haaland hunsaði Holland Lífið Fjörutíu básar í garðinum og götumatur frá öllum heimshornum Matur Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Fleiri fréttir Stjörnum prýtt fimmtugsafmæli Ragnars Jónassonar Hvað veistu um… Disney-myndirnar frá tíunda áratugnum? Bríet sviptir hulunni af kærastanum Fyrsta lesbían til að prýða Playboy „Höfðum hugrekki til að stíga í aðra átt“ Haaland hunsaði Holland Ari fékk arin í 165 milljóna króna húsi Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftirréttinn Ariana Grande byrjuð aftur með fyrrverandi Ljóðrænt hótel á Akureyri David kemur áhugalausri Victoriu til varnar „Drullið ykkur í burtu“ Keyptu hús ömmu og afa Ástrósar Íris Freyja og Egill bæta við öðrum sólargeisla Rakel Sif og Gissur Ari selja á Nýlendugötu Selja herrasetur í Þingholtunum Halla um Jewel: „Hefur oft bjargað sál minni“ Íslenska „ljóskan“ slær í gegn í tískuheiminum Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Sjá meira