Vill verða aðstoðarmaður Lady Gaga 19. apríl 2011 10:00 Aðdáandi Atli Freyr Arnarson, starfsmaður Eskimo, er mikill aðdáandi Lady Gaga og sækist nú eftir að verða aðstoðarmaður hennar í einn dag. „
Það yrði náttúrlega algjör draumur að fá að hitta hana í eigin persónu, hvað þá að fá að aðstoða hana í heilan dag," segir Atli Freyr Arnarson, en hann hefur skráð sig í keppni þar sem fyrstu verðlaun eru að fljúga til London og aðstoða poppstjörnuna Lady Gaga í heilan dag. „Það er frekar fyndin saga hvernig ég fann þessa keppni en í vikunni spáði herbergisfélagi minn fyrir mér í tarotspil og sagði að mér biði spennandi verkefni í nánustu framtíð. Svo var ég á netinu að bíða eftir að sjá nýjasta myndbandið hjá Lady Gaga og rakst þá á þess keppni," segir Atli Freyr en keppnin gengur út á að skrifa stuttan texta um sjálfan sig og aðdáun sína á poppdívunni og safna svo flestum „like-um" á sinn texta. Keppnin er á vegum breska blaðsins Metro þar sem Lady Gaga verður listrænn gestastjórnandi í maí en sigurvegarinn fær að aðstoða hana í þeirri vinnu þann 16. maí næstkomandi. Atli Freyr fer ekki leynt með aðdáun sína á poppstjörnunni og er með andlitsmynd af henni flúraða á upphandlegg sinn. Húðflúrið hefur vakið mikla athygli en heiðurinn af því á Gunnar Valdimar Sigurðsson. „Ég hef engu að tapa á að taka þátt í þessari keppni og takmarkið mitt í er að fá hitta Lady Gaga einhvern tíma á lífsleiðinni," segir Atli og hvetur sem flesta til að fara inn á síðuna og hjálpa honum að hitta átrúnaðargoð sitt en kosningu lýkur 28 apríl. Slóðin á söguna hans Atla er Ladygagametro.com/us/view/1l9. - áp
Lífið Mest lesið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Fleiri fréttir Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Sjá meira